Inga segir nei við samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Inga Sæland formaður Flokks fólksins vill ekki leiða Sjálfstæðisflokkinn til …
Inga Sæland formaður Flokks fólksins vill ekki leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda í borginni. mbl.is/Eyþór Árnason

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn ekki munu taka þátt í að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda í borginni.

RÚV greindi frá.

Fyrir liggur að Einar Þorsteinsson, borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, bauð Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Flokki fólksins til umræðu um myndun nýs meirihluta í gærkvöldi í kjölfar þess að hann sleit meirihlutasamstarfi Framsóknar við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn.

Vinstrið tilbúið til viðræðna

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að ekki gefið að Einar yrði borgarstjóri áfram og að meirihlutamyndun væri gefin heldur væru allir einfaldlega komir aftur á byrjunarreit. 

Líf Magneu­dótt­ir og Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trú­ar Vinstri grænna og Sósí­al­ista, sendu frá sér sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu í dag og sögðust til­bún­ar til viðræðna um mynd­un nýs meiri­hluta við þá sem deila þeirra sýn í borg­ar­mál­un­um.

Ekki hefur náðst í borgarfulltrúa Flokks fólksins, Helgu Þórðardóttur, né formanninn Ingu Sæland í dag þrátt fyrir tilraunir blaðamanna mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert