Lofaði kjósendum að knýja fram breytingar

Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Eyþór

Viðræður Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Viðreisnar og Flokks fólksins hófust í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan níu í gærkvöld, en þá var aðeins liðin rúm klukkustund frá því að meirihlutasamstarfi Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar var slitið.

Fundinum lauk á tólfta tímanum og vildu oddvitar flokkanna ekkert láta hafa eftir sér af fundinum annað en að flokkarnir hefðu komið sér saman um að hefja „formlegar viðræður“, en í því felst að flokkarnir munu ekki ræða við aðra flokka um mögulegt samstarf.

Fyrir fundinn sagðist Einar Þorsteinsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið miða við það í viðræðunum að hann gegndi áfram embætti borgarstjóra, en hann sleit fyrra samstarfi á oddvitafundi um kvöldmatarleytið í gær.

„Ég lofaði kjósendum fyrir síðustu kosningar að knýja fram breytingar í borginni og nú hef ég verið borgarstjóri í heilt ár og sé að ég mun þurfa að leita til annarra flokka sem hafa meiri pólitíska samleið heldur en er í þessum meirihluta.“

Ekkert er þó gefið í því, en samkvæmt heimildum blaðsins á eftir að ræða verkaskiptingu í hugsanlegu meirihlutasamstarfi.

Það var drungalegt yfir ráðhúsinu í gærkvöld þegar oddvitar fjögurra …
Það var drungalegt yfir ráðhúsinu í gærkvöld þegar oddvitar fjögurra flokka komu saman til viðræðna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vandasöm verkefni og skammur tími til stefnu

Talið er að meirihlutaviðræðurnar eigi að geta gengið tiltölulega skjótt fyrir sig. Það eitt að þær hófust svo skömmu eftir að meirihlutanum var slitið bendir til þess að hvort tveggja hafi átt sér einhvern aðdraganda, ekki síst þá það að Viðreisn tekur þátt í þeim en var jafnframt í fráfarandi meirihluta.

Sömuleiðis að Einar kveðst ganga út frá því að hann verði áfram í borgarstjórastóli og gengur til viðræðna með það í huga.

Einar segir í samtali við blaðið að á ýmsu hafi strandað í gamla meirihlutanum og nefnir til dæmis skipulagsmál, Reykjavíkurflugvöll, leikskóla- og daggæslumál og ákvarðanir varðandi rekstur. Næstu daga reynir á hvort meiri samstaða finnst um það.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka