Ekið á ljósastaur og líkamsárás

Talverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og …
Talverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur í miðborginni í gærkvöld. Engin meiðsli urðu á fólki en við skoðun kom í ljós að ökumaður var undir áhrifum áfengis og var hann vistaður í fangageymslu.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun eru 45 mál bókuð í kerfum lögreglu og átta gista í fangaklefa.

Lögreglan fékk tilkynningu um mann í annarlegu ástandi í hverfi 105. Hann var handtekinn fyrir hótanir og var vistaður í fangaklefa.

Lögreglan stöðvaði nokkra ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þá reyndust tveir ökumenn sem voru stöðvaðir í akstri réttindalausir.

Tilkynnt var um mann sem var óvelkominn í annarlegu ástandi í húsi í hverfi 103 og var honum vístað úr úr húsinu.

Lögreglan á lögreglustöð 4, sem sinnir Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ, fékk tilkynningu um líkamsárás í hverfi 112. Um minniháttar meiðsli var að ræða en ekki er vitað hver gerandinn er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert