Lokun óásættanleg fyrir þjóðina

Ekki má mikið út af bera til þess að fella …
Ekki má mikið út af bera til þess að fella þurfi niður flug. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er ótrúlegt að þetta sé staðan. Þeir sem ráða för þurfa að bregðast hratt við og hefðu í raun átt að vera búnir að því fyrir löngu,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair um lokun austur/vestur-flugbrautarinnar í Reykjavík.

Flugbrautinni var lokað á miðnætti á föstudag samkvæmt tilskipun frá Samgöngustofu til Isavia. Ákvörðunin var tekin þar sem hæð trjáa í Öskjuhlíð ógnar flugöryggi til og frá höfuðborginni. Reykjavíkurborg hefur frest til að svara erindi Samgöngustofu til 17. febrúar og frest til 21. mars til að bregðast við.

Mikilvægur hluti af innviðum

Bogi segir að Reykjavíkurflugvöllur sé mjög mikilvægur hluti af innviðum þjóðarinnar hvað varðar innanlandsflug og sjúkraflug.

„Það er búið að þrengja að flugvellinum síðustu ár og það er ekki ásættanlegt að fólk láti þessa stöðu koma upp, hvorki fyrir okkur, þjóðina og sérstaklega ekki landsbyggðina.“

Aðspurður segir Bogi ekkert tilvik hafa komið upp síðan á laugardag, að ekki hafi verið hægt að lenda.

„Þetta hefur samt áhrif á rekstrarskilyrði og það má ekki mikið út af bera til þess að þetta hafi þau áhrif að fella þurfi niður flug. Ef vindátt og aðstæður verða þannig, þá getur það hæglega gerst.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert