„Við þessa stöðu fæst ekki lengur unað. Það að hættustigi sé lýst af veghaldara sýnir alvöru málsins,“ segir í bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar, þar sem kallað er eftir skjótum viðbrögðum æðstu yfirmanna vegamála.
Tíðrætt sé um ástand vega í héraðinu undanfarin ár en nú sé umferðaröryggi á Þjóðvegi 60, Vestfjarðavegi í gegnum Dali, ógnað meira en nokkru sinni fyrr og viðbragðsáætlun verði að virkja.
Tilkynnt var um hættuástand á veginum í dag á vef Vegagerðarinnar.
„Hættustig vegna bikblæðinga er í gildi á Bröttubrekku, í gegnum Dalina, yfir Svínadal og út Hvolsdal en einnig á veginum yfir Vatnaleið, undir Hafursfelli og að Heydalsafleggjara. Hraði er tekinn niður í 70 km/klst.“
Sveitarstjórnin segir neyðarhópa hafa verið myndaða af minna tilefni og að fullreynt sé að höfða til ábyrgðar æðstu stjórnenda Vegagerðarinnar, hvað ástand vegakerfisins varðar.
Þá er staðan sögð óviðunandi og öryggi vegfarenda sé stefnt í tvísýnu.
Er einnig vísað í minnispunkta frá verktaka við uppbyggingu íþróttamannvirkja í Búðardal, langstærstu framkvæmd sveitarfélagsins frá upphafi, sem nær ekki fullum afköstum vegna takmarkana á öxulþunga.
„Vegna ástands vega, yfirlýsts hættuástands og þungatakmarkana frá Borgarnesi í Búðardal getum við ekki tryggt eðlilega framvindu við verkefnið. Steypubílar geta aðeins flutt 75% af því magni sem þeir geta flutt til okkar og steypudæla má ekki aka vegina vegna þungatakmarkana. Þetta þýðir að akstur per rúmmetri eykst gríðarlega m.a. vegna minnkaðs magns í steypubíl og við þurfum að steypa oftar og minni steypur því steypudælan hefur meiri öxulþunga en 10 tonn og getur því ekki komið til okkar.“