Næstu tvö árin meðan á framkvæmdum við Fossvogsbrú stendur munu framkvæmdir raska starfsemi Reykjavíkurflugvallar í alls níu daga.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Betri samgöngum og Isavia en félögin hafa verið í nánum samskiptum undanfarin ár vegna nálægðar framkvæmdasvæðis við Reykjavíkurflugvöll.
Hönnuðir Fossvogsbrúar hafa hagað útfærslu sinni þannig að háum tækjakosti verði beitt sem minnst þegar brúin verður reist. Með notkun hæðarstýringa á vinnuvélum verður svo hæðartakmörkun á verktíma tryggð.
„Einnig lögðu Isavia Innanlandsflugvellir mikla áherslu á að forðast bæri vinnu við landfyllingu með dæluskipi en slík vinna mun að öllum líkindum hafa í för með sér mikla aukningu á fuglalífi við brautarendann. Þessi vinna hefur leitt til þess að einu framkvæmdirnar sem munu rjúfa hindrunarfleti flugvallarins eru þegar brúarstólpar og brúarbitar verða hífðir með 60 m háum krana á fljótandi pramma.
Samkvæmt áætlun hönnuða munu þessar hífingar standa yfir í níu daga samtals, eða 4 daga sumarið 2026 og 5 daga sumarið 2027 svo fremi sem veðuraðstæður séu hagfelldar,“ segir í tilkynningunni.
Verkefnastofa Borgarlínu og hönnuðir Fossvogsbrúar hafa unnið öryggismat fyrir landfyllingar og brúargerð og því var komið til Isavia til frekari úrvinnslu.
Því næst voru þessir aðilar kallaðir til að vinna öryggismat um landfyllinguna og fram undan er vinna við sams konar öryggismat vegna byggingar brúarinnar.
Öryggismatið er framkvæmt af Isavia Innanlandsflugvöllum en er háð samþykki Samgöngustofu.
„Til að lágmarka áhrif framkvæmda á starfsemi flugvallarins er gengið út frá því að hífingarnar verði gerðar að nóttu til. Verið er að rýna hvort það samræmist hávaðareglugerð, lögreglusamþykktum og öðrum þáttum.
Ljúka þarf þessari skoðun áður en hægt er að klára öryggismat Isavia Innanlandsflugvalla á framkvæmdum við brúarbygginguna og senda til samþykktar Samgöngustofu. Fáist ekki til þess tilskilin leyfi, verður aðgerðin endurmetin af hálfu flugvallarins,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að í útboðsgögnum Betri samgangna til verktaka fyrir byggingu brúarinnar verði gerð krafa um að truflun flugsamgangna verði haldið í lágmarki.
„Ljóst er að framkvæmdir við landfyllingar Reykjavíkurmegin rjúfa hindrunarfleti flugbrautarinnar aðeins lítillega en ákveðið hefur verið í samráði við Isavia Innanlandsflugvelli hvernig verktaki skal bera sig að þegar hann sækir um tímabundið leyfi til að rjúfa hindrunarfleti. Stefnt er að sambærilegum ráðstöfunum í seinni hluta framkvæmda.“