Fuglaflensa greindist í kettlingi

H5N5-fuglaflensan hefur m.a. greinst í fálka.
H5N5-fuglaflensan hefur m.a. greinst í fálka. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Kettlingur sem veiktist á Raufarhöfn fyrir viku reyndist vera með fuglaflensu af gerðinni H5N5. 

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að stofnuninni hafi í gær borist upplýsingar frá Tilraunastöð HÍ að Keldum um að skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N5 hafi greinst í sýni sem tekið var úr ketti frá Raufarhöfn fyrir viku síðan.

Um var að ræða átta mánaða gamlan kettling, sem varð skyndilega veikur, var orðinn mjög slappur á öðrum degi veikinda og fékk krampa á þriðja degi. Fóru eigendurnir með hann til dýralæknis á Akureyri sem tilkynnti atvikið til Matvælastofnunarm en aflífa þurfti kettlinginn.

Í tilkynningunni kemur fram að annar köttur sé á sama heimili, en hann er frískur. Er þetta þriðji kötturinn sem greinist með fuglainflúensu af gerðinni H5N5 frá því í desember síðastliðnum. Þá hafa alls 12 sýni verið tekin úr köttum frá því í desember, en níu þeirra hafa reynst neikvæð.

Engar vísbendingar eru um smit á milli spendýra

„Engar vísbendingar eru um að þetta afbrigði af fuglainflúensu berist á milli spendýra og því er talið líklegast að þessi kettlingur hafi smitast af sýktum villtum fugli, þrátt fyrir að ekki hafi borist margar tilkynningar um veika eða dauða fugla í nágrenni Raufarhafnar,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að einungis 15 sýni hafi verið úr fuglum á norðausturhorni landsins frá því í september á síðasta ári, og reyndust sex þeirra jákvæð fyrir fuglaflensu af gerðinni H5N5. Fannst flensan í einum fálka sem fannst nálægt Kópaskeri í september, í fjórum hettumáfum á Húsavík í sama mánuði og í einum silfurmáfi þar í nóvember.

Í tilkynningunni er einnig áréttað að engin tilfelli séu þekkt í heiminum af sýkingum í fólki vegna fuglainflúensuveiru af því afbrigði sem hefur verið að greinast hér á landi síðustu mánuði, þ.e. H5N5.

Eigendur séu vakandi fyrir einkennum

Matvælastofnun hvetur dýraeigendur til að vera vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í dýrum sínum sem geta bent til fuglaflensu og leita tafarlaust til dýralækna ef dýrin verða skyndilega mjög slöpp og fá taugaeinkenni. Viðkomandi dýralæknar hafa svo samband við Matvælastofnun er þeir telja ástæðu til.

Almenningur er líka áfram beðinn um að tilkynna til Matvælastofnunar um veika eða dauða villta fugla og villt spendýr. Það er gert með því að smella á hnappinn „Ábendingar og fyrirspurnir“ á heimasíðu stofnunarinnar (www.mast.is). Mikilvægt er að lýsa nákvæmlega staðsetningu, helst með hnitum, og gott ef hægt er að senda mynd með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert