Fullur stuðningur við Samninganefnd sveitarfélagana

Stjórn sambandsins og framkvæmdastjórar sveitarfélaga ítreka fullan stuðning við Samninganefnd …
Stjórn sambandsins og framkvæmdastjórar sveitarfélaga ítreka fullan stuðning við Samninganefnd sveitarfélaga. Ljósmynd/Colourbox

Staða kjaraviðræðna Kennarasambands Íslands og Samninganefndar sveitarfélaga var tekin fyrir á fundi stjórnar sambandsins og framkvæmdastjóra sveitarfélaga fyrr í dag.

Ítrekað var á fundinum að Samninganefnd sveitarfélaga og þau sjónarmið sem lagt hefur verið upp með frá því að samningaviðræður hófust, njóta áfram fulls stuðnings.

Ítreka samningsvilja

„Stjórn Sambandsins og framkvæmdastjórar sveitarfélaga ítreka samningsvilja sinn og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum samninganefndar á næstu dögum við aðildarfélög KÍ um lausn kjaradeilunnar sem fyrst. Þar berum við öll ábyrgð og þurfum að ná saman,“ er haft eftir Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Tillaga ríkissáttarsemjara um virðismatsleið var samþykkt einhuga af sveitarfélögunum – þrátt fyrir að hún feli í sér talsverðan kostnað fyrir sveitarfélögin.

Sveitarfélögin leggja mikla áherslu á að ná samningum. Þau telja virðismatsleiðina skynsama leið fyrir báða aðila til að ná farsælli niðurstöðu um ágreiningsefni þau er út af standa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert