Maður í haldi vegna skotvopnsins

Laugalækjarskóli.
Laugalækjarskóli. mbl.is/sisi

Karlmaður um fertugt er í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar hennar á skotvopninu sem fannst á þaki Laugalækjarskóla í gærkvöldi.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að maðurinn hafi verið handtekinn á höfuðborgarsvæðinu síðdegis, en hann er talinn hafa komið skotvopninu fyrir á áðurnefndum stað.

„Svo virðist sem tilviljun hafi ráðið því, en til rannsóknar hjá lögreglu er óskylt mál sem maðurinn er grunaður um aðild að. Skotvopnið tengist því máli, en vopnið hafði verið mjög stutt á þaki skólans áður en það fannst,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Þá segir að vopnafundurinn hafi eðlilega vakið áhyggjur hjá mörgum, en að ekki verði séð að maðurinn, sem er í haldi lögreglu, hafi „neina tengingu við þetta skólasamfélag svo því sé einnig komið á framfæri,“ að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert