Skoðar ekki styrki

Leitað hefur verið til saksóknara vegna styrkjamálsins.
Leitað hefur verið til saksóknara vegna styrkjamálsins. mbl.is/Karítas

Umboðsmaður Alþingis hefur ekki í hyggju að taka svokallað styrkjamál til skoðunar, a.m.k. ekki að svo stöddu.

Ástæðan er sú að málið er til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Þetta segir Kristín Benediktsdóttir, umboðsmaður Alþingis, í samtali við Morgunblaðið.

Styrkjamálið hverfist um fjárstyrki sem stjórnmálasamtök þáðu án þess að uppfylla þau skilyrði um móttöku styrkjanna sem lög mæla fyrir um.

„Umboðsmaður fer aldrei af stað á meðan stjórnvöld eru að skoða málin. Það var verið að gera það í fjármálaráðuneytinu og nú talar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um að hún ætli að taka málið til skoðunar. Umboðsmaður fer aldrei í samkeppni við þingið, enda hluti af þinginu,“ segir Kristín.

Hún segir að málið sé flókið og snerti einnig ríkisendurskoðun.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka