Félag grunnskólakennara hefur boðað tímabundin verkföll í grunnskólum í þremur sveitarfélögum, Akraneskaupstað, Hveragerðisbæ og Ölfusi.
Þá hefur Félag leikskólakennara boðað ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Kópavogs, sem eru 22 talsins.
Verkfallsaðgerðir hefjast 3. mars hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.
Félagsfólk FG, FL og SÍ, sem starfar í fyrrgreindum sveitarfélögum, samþykkti verkfallsboðun með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, að segir í tilkynningu á vef Kennarasambands Íslands.
Var kjörsókn í öllum tilfellum góð, á bilinu 60% til 100%. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 13.-14. febrúar.
Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands, sem starfar hjá sveitarfélögunum Ölfusi, Hveragerðisbæ og Akraneskaupstað, samþykkti verkfallsboðun frá 3. mars.
Einn grunnskóli er í Ölfusi, einn í Hveragerðisbæ og tveir í Akraneskaupstað.
Verkfallsboðun nær einnig til félagsfólks sem starfar á skólaskrifstofum sveitarfélaganna. Verkföll grunnskólafélaganna verða tímabundin og standa til og með 21. mars 2025.
Eftir helgi hefjast atkvæðagreiðslur um ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Hafnarfjarðar og Fjarðabyggðar.