„Fyrirvarinn verður mjög stuttur“

Síðasta eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni lauk 9. desember.
Síðasta eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni lauk 9. desember. mbl.is/Hákon

Staðan á Sundhnúkagígaröðinni hefur lítið breyst undanfarna daga að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands en áfram eru taldar líkur á eldgosi.

Skjálftavirknin á svæðinu er mjög takmörkuð en landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram að sögn Elísabetar Pálmadóttur náttúruvársérfræðings.

Spurð hvort hafi orðið vart við einhverjar breytingar í borholum HS Orku sem gerðu viðvart um síðustu tvö eldgos á Sundhnúkagígaröðinni segir Elísabet:

„Nei. Við fylgjumst grannt með þeim allan sólarhringinn og það er ekki að sjá neinar breytingar. Þá höfum við bætt við ljósleiðara til auka vöktun á jarðhræringum og í svona góðu veðri eins og er núna höfum við með ágæta yfirsýn yfir alla mæla,“ segir hún.

Elísabet segir ómögulegt að segja til um það hvenær það dragi til tíðinda á Sundhnúkagígaröðinni. Veðurstofan telur áfram að hætta sé á eldgosi en ríkislögreglustjóri lýsti yfir hættustigi á Reykjanesskaga þann 30. janúar.

„Það getur farið að gjósa á morgun eða eftir tvær vikur en við búumst við því að fyrirvarinn verði mjög stuttur,“ segir hún.

Sjöunda eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni frá því í desember 2023 lauk 9. desember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert