Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.
Þetta segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Kemur þar fram að í fréttatilkynningu Fitch segi að A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspegli miklar tekjur á mann og góða stjórnarhætti sem séu sambærilegri við lönd með AAA og AA lánshæfiseinkunn.
„Til styrkleika teljast verulegar lífeyrissjóðseignir, traust fjármálakerfi og sterkir efnahagsreikningar einkageirans. Rúmur gjaldeyrisforði dregur úr næmni hagkerfisins gagnvart ytri áföllum. Hins vegar halda smæð hagkerfisins og einsleitni útflutnings aftur af einkunninni.
Aukin tiltrú á markverða og viðvarandi lækkun skuldahlutfalls hins opinbera, meiri leitnivöxtur þjóðarbúsins og/eða vísbendingar um aukna fjölbreytni hagkerfisins sem minnka næmni hagkerfisins gagnvart ytri áföllum gætu haft jákvæð áhrif á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs,“ segir í tilkynningunni.
Þá gætu markverð hækkun skuldahlutfalls hins opinbera, vegna viðvarandi slaka í ríkisfjármálum eða alvarlegt efnahagsáfall, til dæmis vegna skarprar leiðréttingar á fasteignamarkaði, haft neikvæð áhrif á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.