Borgin setur fjórar einbýlishúsalóðir á sölu

Lóðirnar voru boðnar út á liðnu ári en tilboð sem …
Lóðirnar voru boðnar út á liðnu ári en tilboð sem bárust voru metin of lág. mbl.is/Ómar

Reykja­vík­ur­borg seg­ir að bygg­ing­ar­rétt­ur á fjór­um ein­býl­is­húsalóðum í Grund­ar­hverfi á Kjal­ar­nesi sé boðinn til sölu á föstu verði.

Lóðirn­ar eru Helgu­grund 9, 11 og 12 og Búa­grund 16. Heim­ilt er að byggja 250 – 280 m2 hús á lóðunum, sem eru staðsett­ar í útjaðri gró­ins hverf­is, að því er seg­ir á vef Reykja­vík­ur­borg­ar.

Þar seg­ir að stærð lóðanna sé á bil­inu 700-800 fer­metr­ar með nýt­ing­ar­hlut­fallið 0,35, sem ráði stærð bygg­ing­ar á lóð.

„Svo dæmi sé tekið um stærð húss sem byggja má, þá er lóðin Helgu­grund 9 um 718 fm, sem þýðir að á þeirri lóð er heim­ilt að byggja allt að 251 fm ein­býl­is­hús,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Lóðirnar eru í útjaðri Grundarhverfis á Kjalarnesi.
Lóðirn­ar eru í útjaðri Grund­ar­hverf­is á Kjal­ar­nesi. Ljós­mynd/​Reykja­vík­ur­borg

Til­boð sem bár­ust met­in of lág

Lóðirn­ar voru á liðnu ári boðnar út, en til­boð sem bár­ust voru met­in of lág og eru þær nú sam­kvæmt ákvörðun borg­ar­ráðs 12. des­em­ber nú boðnar á föstu verði með hliðsjón af verðmati tveggja óvil­hallra aðila að sögn borg­ar­inn­ar.

Verð lóðanna tek­ur mið af nýt­ing­ar­hlut­falli lóðar, sem er 0,35 skv. gild­andi deili­skipu­lagi:

  • Helgu­grund 9. Lóð er um 718 m2 og má því byggja allt að 251 m2 íbúðar­hús. Fast verð er kr. 8.684.600.
  • Helgu­grund 11. Lóð er um 811 m2 og má því byggja allt að 284 m2 íbúðar­hús. Fast verð er kr. 9.826.400.

  • Helgu­grund 12. Lóð er 819 m2 og má því byggja allt að 287 m2 íbúðar­hús. Fast verð er kr. 9.930.200.

  • Búa­grund 16. Lóð er 808 m2 og má því byggja allt að 283 fm. íbúðar­hús. Fast verð er kr. 9.791.800.

Verðið miðast við bygg­ing­ar­vísi­tölu og er fram­reiknað í sam­ræmi við þróun vísi­töl­unn­ar til greiðslu­dags. Auk greiðslu fyr­ir bygg­ing­ar­rétt greiðir lóðar­hafi gatna­gerðar­gjöld og önn­ur lög­bund­in gjöld að sögn borg­ar­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert