Segjast langt komnar með viðræður í borginni

Oddvitar fimm flokka ræða enn myndun nýs meirihluta.
Oddvitar fimm flokka ræða enn myndun nýs meirihluta. mbl.is/Eyþór

Stjórn­ar­mynd­urn­ar­viðræður í borg­inni ganga sem skyldi, snert hef­ur verið á flest­um mála­flokk­um og von­ast er eft­ir mynduðu stjórn­ar­sam­starfi fljót­lega, að sögn Dóru Bjart­ar Guðjóns­dótt­ur odd­vita Pírata.

„Við erum í raun­inni bún­ar að snerta á öll­um mála­flokk­um, við erum bún­ar að fjalla um flest allt og það er bara fínn sam­hljóm­ur og við höf­um rætt okk­ur niður á sátt í flestu efni en við erum enn þá að vinna text­ann og klára sátt­mál­ann okk­ar,“ seg­ir Dóra Björt í sam­tali við mbl.is.

Þannig að það stytt­ist lík­lega í full­myndað stjórn­ar­sam­starf?

„Já, við erum að vona það, við erum alla vega bún­ar að fjalla um flestallt og ná lend­ingu um flest mál­efni, en erum að vinna loka­af­urðina og kannski hnýta þá hnúta sem stóðu eft­ir. Þannig að við erum komn­ar langt með þetta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert