„Þótt myndavélar sem slíkar komi ekki í veg fyrir að alvarlegur atburður gerist eða afbrot sem framið hafa þær fælingarmátt og auðvelda að mál sem upp koma verði upplýst.“
Þetta sagði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, er hún steig í ræðustól á Alþingi í dag og gerði öryggismál barna að umræðuefni undir dagskrárliðnum störf þingsins.
Öryggismál þar sem börn koma saman eru í brennidepli um þessar mundir en Kolbrún sagði notkun öryggis- og eftirlitsmyndavéla hafa borið einna hæst í umræðunni.
„Vissulega er mikilvægt að tækjabúnaður sem þessi og gögn honum tengd sé ekki misnotuð til að hefta frelsi eða frelsistilfinningu einstaklinga,“ segir Kolbrún.
Bendir hún á að skoða mætti hvort ekki þyrfti að losa um hindranir sem snúa að eftirlits- og öryggismyndavélum í persónuverndarkerfinu, til að tæknin geti nýst betur og víðar.
„Finna þarf leiðir til að skólar séu ekki berskjaldaðir og að hver sem er geti gengið hindrunarlaust inn, einhver sem ekki á þangað erindi,“ sagði hún jafnframt.
Öryggisverðir eru í flestum stærri verslunum og sagði Kolbrún hugmyndina hafa heyrst að slíkir verðir ættu hiklaust að vera í skólum, auk öryggis- og eftirlitsmyndavéla.
Kolbrún bendir einnig á að auka þurfi öryggisvörslu víðar en í skólum. Börn upplifi sig oft óörugg í strætó enda hafi þau orðið þar fyrir einelti og öðru ofbeldi.
Segir hún aðstæður kalla á breytta hugsun, auknar forvarnir og nýtt mat á öryggisstöðlum. Tímabært sé að ræða hvernig við viljum sjá þessum málum háttað í framtíðinni.
„Samfélag okkar hefur breyst og spyrja má hvort ekki séu komin vatnaskil í stöðu öryggismála og öryggisvörslu þegar litið er til skólasamfélagsins og annarra staða þar sem börn og ungmenni koma saman.“