#66. - Valdatafl í Valhöll og vísað í dularfullan klúbb

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Tvær fylk­ing­ar berj­ast um völd­in í Sjálf­stæðis­flokkn­um. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur og hin að baki Guðrúnu Haf­steins­dótt­ur. Þær mæta í settið í nýj­asta þætti Spurs­mála og svara krefj­andi spurn­ing­um.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um er hægt að nálg­ast í meðfylgj­andi mynd­bands­spil­ara, á Spotify og YouTu­be, og er hún öll­um aðgengi­leg.

    Hvor í sínu lagi

    Stefán Ein­ar ræðir við þær stöll­ur í sitt­hvoru lagi í afar áhuga­verðum þætti Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn. Þar eru þær einnig spurðar út í gagn­rýni sem komið hef­ur upp inn­an flokks og utan á störf þeirra á fyrri tíð.

    Stærsta spurn­ing­in til þeirra hlýt­ur að vera hvernig þær telji sig geta aukið fylgi flokks­ins sem er nú áhrifa­laus, bæði á Alþingi Íslend­inga og í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Hvað munu þær gera öðru­vísi en Bjarni Bene­dikts­son, nái þær kjöri.

    Mörg stórtíðindi í vik­unni

    Í frétt­um vik­unn­ar er margt og mikið helst. Frétta­hauk­arn­ir Jakob Bjarn­ar Grét­ars­son og Jón G. Hauks­son fara yfir helstu frétt­ir, sam­ein­ing­ar­hug­mynd­ir Ari­on banka og Íslands­banka, stöðuna í borg­ar­stjórn og á stjórn­ar­heim­il­inu þar sem Kristrún Frosta­dótt­ir ræður ríkj­um.

    Ekki missa af Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

    Jakob Bjarnar Grétarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Jón …
    Jakob Bjarn­ar Grét­ars­son, Guðrún Haf­steins­dótt­ir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir og Jón G. Hauks­son eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um að þessu sinni. Sam­sett mynd/​mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert