Mótmæla lokun flugbrautar

Bæjar- og sveitarstjórar vilja að brautin verði opnuð.
Bæjar- og sveitarstjórar vilja að brautin verði opnuð. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er þverpólitísk samstaða allra þeirra sveitarstjórna sem verða að geta treyst á öryggi innanlandsflugsins bæði þegar kemur að áætlunarflugi og sjúkraflugi,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, um lokun austur/vestur-flugbrautar Reykjavíkurflugvallar.

Hún skrifaði ásamt níu öðrum bæjarstjórum á landsbyggðinni sameiginlega grein sem birtist á vísi.is þar sem þau mótmæla því að trjágróður í Öskjuhlíð njóti forgangs þegar um líf og heilsu fólks utan af landi er að ræða.

Spurð hvort þau hafi verið í samskiptum við Reykjavíkurborg vegna málsins segir hún þennan hóp munu eiga fund með borgaryfirvöldum, samgönguráðuneyti, Samgöngustofu og Isavia á mánudag.

„Við lítum það mjög alvarlegum augum að þessi dráttur hafi orðið og ekki hafi verið skeytt um að ganga í það sem þurfti að gera til að halda brautinni opinni.“

Fundurinn verður á Teams, þar sem bæjarstjórarnir eru staddir út á landi og óvíst með flug.

„Við leggjum þunga áherslu á að brautin verði opnuð, því það er vegið að öryggi íbúanna á þessum svæðum. Það á ekki að leggja viljandi stein í götu þess að flugvöllurinn geti verið opinn og í fullum rekstri.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka