Tvær fylkingar berjast um völdin í Sjálfstæðisflokknum. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og hin að baki Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Þær mæta í settið í nýjasta þætti Spursmála og svara krefjandi spurningum.
Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum er hægt að nálgast í meðfylgjandi myndbandsspilara, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg.
Stefán Einar ræðir við þær stöllur í sitthvoru lagi í afar áhugaverðum þætti Spursmála þennan föstudaginn. Þar eru þær einnig spurðar út í gagnrýni sem komið hefur upp innan flokks og utan á störf þeirra á fyrri tíð.
Stærsta spurningin til þeirra hlýtur að vera hvernig þær telji sig geta aukið fylgi flokksins sem er nú áhrifalaus, bæði á Alþingi Íslendinga og í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvað munu þær gera öðruvísi en Bjarni Benediktsson, nái þær kjöri.
Í fréttum vikunnar er margt og mikið helst. Fréttahaukarnir Jakob Bjarnar Grétarsson og Jón G. Hauksson fara yfir helstu fréttir, sameiningarhugmyndir Arion banka og Íslandsbanka, stöðuna í borgarstjórn og á stjórnarheimilinu þar sem Kristrún Frostadóttir ræður ríkjum.
Ekki missa af Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.