Valdatafl í Valhöll og Jakob vísar í dularfullan klúbb

Tvær fylkingar berjast um völdin í Sjálfstæðisflokknum. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og hin að baki Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Þær mæta í settið í nýjasta þætti Spursmála og svara krefjandi spurningum.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum er hægt að nálgast í meðfylgjandi myndbandsspilara, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg.

Hvor í sínu lagi

Stefán Einar ræðir við þær stöllur í sitthvoru lagi í afar áhugaverðum þætti Spursmála þennan föstudaginn. Þar eru þær einnig spurðar út í gagnrýni sem komið hefur upp innan flokks og utan á störf þeirra á fyrri tíð.

Stærsta spurningin til þeirra hlýtur að vera hvernig þær telji sig geta aukið fylgi flokksins sem er nú áhrifalaus, bæði á Alþingi Íslendinga og í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvað munu þær gera öðruvísi en Bjarni Benediktsson, nái þær kjöri.

Mörg stórtíðindi í vikunni

Í fréttum vikunnar er margt og mikið helst. Fréttahaukarnir Jakob Bjarnar Grétarsson og Jón G. Hauksson fara yfir helstu fréttir, sameiningarhugmyndir Arion banka og Íslandsbanka, stöðuna í borgarstjórn og á stjórnarheimilinu þar sem Kristrún Frostadóttir ræður ríkjum.

Ekki missa af Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

Jakob Bjarnar Grétarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Jón …
Jakob Bjarnar Grétarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Jón G. Hauksson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum að þessu sinni. Samsett mynd/mbl.is/María Matthíasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka