Spann lygavef um krabbamein

Kaitlyn Dever leikur Belle Gibson í nýjum þætti á Netflix.
Kaitlyn Dever leikur Belle Gibson í nýjum þætti á Netflix.

Sagan af Belle Gibson er lyginni líkust, enda sjaldgæft að fólk leggist svo lágt að ljúga til um krabbamein í heila til þess að öðlast frægð, fá athygli og þéna peninga. Hin ástralska Gibson tilkynnti á spjallsíðum og síðar samfélagsmiðlum að hún hefði greinst með ólæknandi heilakrabba og að læknarnir gæfu henni „sex vikur; fjóra mánuði í mesta lagi“, eins og hún orðaði það.

Hún þóttist hafa læknað sig sjálfa með hollu fæði og í árdaga Instagram birti hún ljósmyndir af sjálfri sér ásamt myndum af mat og uppskriftum. Fylgjendum fór sífjölgandi og gaf það fjölmörgum raunverulegum krabbameinssjúklingum falsvonir – og mætti því ætla að hún ætti jafnvel þátt í dauða þeirra sem fylgdu hennar fordæmi að afþakka nútímalækningar.

Á Netflix má nú finna seríuna Apple Cider Vinegar, um sögu Gibson, en það er Kaitlyn Dever sem leikur hana snilldarlega. Í þáttunum er fylgst með Gibson spinna sinn lygavef og virðist hún svífast einskis til að ná sínum markmiðum. 

Dó á skurðarborðinu

En hver er svikakvendið Belle Gibson? Gamall kærasti segir hana sífellt hafa verið að skálda upp sögur og var hún strax í grunnskóla álitin sjúklegur lygari. En það var á netinu að lygasögur hennar náðu hámarki, en árið 2005 hóf hún að birta ­færslur á spjallsíðum þar sem hún tilkynnti að hún væri með heilakrabba, þá aðeins fjórtán ára. Á spjallsíðum fyrir hjólabrettafólk póstaði hún að hún hefði farið í stóra aðgerð vegna krabbans og hefði dáið í nokkrar mínútur á skurðarborðinu.

Hin raunverulega Belle Gibson laug til um krabbamein.
Hin raunverulega Belle Gibson laug til um krabbamein. Skjáskot/Youtube

Vinsæl á Instagram

Nítján ára eignaðist hún son og fann þá samúð hjá mæðrum á netinu, enn að halda fram krabbameini. Árið 2012 fann hún sinn stað á Instagram, sem var þá tiltölulega nýr miðill. Á svipuðum tíma hóf hún sambúð með sér tuttugu árum eldri manni að nafni Clive og stofnaði þá reikninginn „Healing Belle“ á Instagram, þar sem hún lýsti því hvernig hún læknaði krabbann með óhefðbundnum lækningaaðferðum og heilsumat. Stíliseraðar myndir af henni, geislandi af heilbrigði, og fallegar matarmyndir af hollum mat vöktu athygli og áður en varði var hún komin með 200.000 fylgjendur, sem þótti mjög mikið á þessum árum. Fólk kallaði hana baráttukonu og engil og sagði hana veita sér von og innblástur. Upp komst um svikin um síðir. 

Ítarlega er fjallað um svikakvendið í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert