Þýskir sérfræðingar skoða framtíð Grindavíkur

Horft yfir Grindavík.
Horft yfir Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Verkefnum stjórnvalda vegna náttúruvár á Reykjanesskaga er hvergi nærri lokið og fyrirséð að þau muni taka mörg ár enn eða áratugi.“

Þetta segir í sameiginlegri tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Segir þar enn fremur að þýskir sérfræðingar ráðgjafafyrirtækisins Deloitte muni koma að gerð framtíðarsviðsmynda Grindavíkur í samvinnu við stýrihóp ráðuneytisstjóra og ýmsa aðila í ráðuneytum, stofnunum og hjá Grindavíkurbæ.

Gripið til umfangsmikilla aðgerða til að tryggja öryggi

Kemur fram í tilkynningunni að vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga hafi stjórnvöld á liðnum misserum gripið til umfangsmikilla ráðstafana til þess að tryggja öryggi almennings sem og að verja og tryggja virkni mikilvægra innviða.

Bent er á að meirihluti íbúðarhúsa í Grindavík hafi verið keyptur af íbúum og margvíslegur húsnæðis- og fjárhagsstuðningur veittur til þess að tryggja sem best fjárhagslegt öryggi fólks.

Einnig hafi átt sér stað bygging varnargarða gegn hraunflæði sem ógni byggð og innviðum.

Sömuleiðis hafi verið gerð ýmis greiningarvinna til þess að styrkja viðnámsþrótt og viðbragðsgetu samfélagsins.

Þá hafi verið stofnuð sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur til að fara með stjórn og samhæfingu aðgerða.

Undirbúa frekari stefnumótun

„Ríkisstjórnin hefur fjallað um ýmis mál tengd Grindavík og öryggi á Reykjanesskaga á fundum sínum og haldið fund í ráðherranefnd um málefni Grindavíkur. Að loknum ráðherranefndarfundi þann 14. janúar sl. fól forsætisráðherra stýrihópi ráðuneytisstjóra í málefnum Grindavíkur að undirbúa frekari stefnumótun ríkisins fyrir ráðherranefnd,“ segir í tilkynningunni.

Mun frekari stefnumótun m.a. fela í sér viðhorfskönnun meðal þeirra sem bjuggu í Grindavík við upphaf hamfaranna, mat á þörf fyrir frekari úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og gerð sviðsmynda um framtíð Grindavíkur.

Niðurstöður kynntar um miðjan mars

„Þýskir sérfræðingar ráðgjafafyrirtækisins Deloitte koma að gerð sviðsmynda í samvinnu við stýrihóp ráðuneytisstjóra og ýmsa aðila í ráðuneytum, stofnunum og hjá Grindavíkurbæ.

Sviðsmyndagreining er gagnadrifin aðferðafræði sem nýtt er til að sjá betur fyrir sér mögulega framtíð við ófyrirsjáanlegar aðstæður. Á slíkum grundvelli verða ákvarðanir markvissari og líklegri til þess að skila betri árangri. Stefnt er að því að niðurstöður verði kynntar um miðjan mars,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert