Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS Delaware, verður í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að varðskipið Freyja muni fylgja kafbátnum um landhelgina og í utanverðan Eyjafjörð, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.
Þetta er í sjötta sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar.
Fram kemur að Landhelgisgæslan muni leiða framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.