Lítur á biðlaunin sem „tímabundna afkomutryggingu“

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður VR, segist hafa lagt biðlaun sem hann fékk greidd frá VR eftir að hann sagði af sér formennsku, inn á neyðarsjóð fjölskyldunnar.

Tók hann ákvörðun um að gera það í ljósi þess að forystufólk í verkalýðshreyfingunni eigi jafnan erfitt uppdráttar á atvinnumarkaði eftir starfslok.

Þetta segir Ragnar Þór í færslu sem hann birti á Facebook fyrir skemmstu. 

Hann tekur einnig fram að hann hafi lækkað laun sín þegar hann tók við embætti formanns VR og einnig þegar hann tók við formennsku í Landsambandi íslenskra verslunarmanna. Þá hafi hann afsalað sér launhækkunum. 

„Ég tók þetta saman að samtals lækkaði ég laun mín á þessu tímabili um 40,6 milljónir, sem VR/LÍV greiddi mér í lægri launum en annars hefði verið,“ skrifar Ragnar Þór.

Hefur skilning á að þetta slái fólk illa 

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að hann hefði fengið greidd biðlaun og ótekið orlof í eingreiðslu eftir að hann sagði af sér formennsku í VR. Hljóðað upphæðin upp á 10,2 milljónir króna.

Segist Ragnar Þór hafa fullan skilning á því að þetta slái fólk illa, en hann vilji koma sjónarmiðum sínum á framfæri og forsögu málsins.

„Ástæða þess að við hjónin ákváðum að halda biðlaunum er fyrst og fremst sú að ég hef litið á biðlaunin sem mjög tímabundna, afkomutryggingu, þar sem forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur jafnan átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eftir starfslok,“ skrifar Ragnar Þór meðal annars.

Starfið felist í grunninn í aðhaldi gegn samtökum atvinnulífsins og fleiri sérhagsmunastamtökum. Formenn sem hafi gengið hvað harðast fram séu því í veikari stöðu en aðrir hvað varðar framtíðaratvinnu. Fjölmörg dæmi séu um það.

Líklega sá sem hafi gengist harðast fram

„Sem fimm barna faðir og líklega sá forystusauður innan verkalýðshreyfingarinnar sem gengið hefur hvað harðast fram gegn þeim sem allt eiga, og öllu ráða, í íslensku samfélagi tel ég mig vera berskjaldaðri en margir aðrir í minni stöðu.

Við tókum því þessa ákvörðum um að leggja biðlaunin inn á neyðarsjóð fjölskyldunnar og nýta hann þegar þess verður þörf.“

Segist hann ekki búa við þann lúxus að geta farið í leyfi, eins og opinberir starfsmenn, og gengið að starfi eftir að þingsetu líkur eða þeim réttindum sem því fylgja, eins og biðlaunum.

„Hvað upphæðir varðar þá snúast þær um sex mánaða laun hjá VR eða um átta milljónir fyrir skatt. Ég gegndi trúnaðarstörfum fyrir VR í 16 ár. Þetta er hluti af þeim starfskjörum sem ég samdi um í upphafi formannstíðar minnar, með hliðsjón af því að lækka launin umtalsvert á móti.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert