300 milljónir farnar í bætur

Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 ganga vel, en gert er ráð …
Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 ganga vel, en gert er ráð fyrir að hún verði komin í rekstur á síðari hluta þessa árs. mbl.is/Sigurður Bogi

Dóms er að vænta fljótlega í þremur málum sem eigendur þriggja jarða á línuleið Suðurnesjalínu 2 reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, en aðalmeðferð í málunum fór fram við dómstólinn 13. febrúar sl., skv. upplýsingum frá Landsneti.

Landeigendurnir kærðu eignarnámsákvörðun til dómstóla, en úrskurður matsnefndar eignarnámsbóta lá fyrir 25. nóvember í öllum málunum. Málin njóta flýtimeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ekki náðust samningar við fimm eigendur þriggja jarða á línuleiðinni. Á síðasta ári var óskað eftir eignarnámi hjá ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og var slíkt leyfi veitt 21. júní í fyrra. Úrskurður matsnefndar eignarnámsbóta lá fyrir 25. nóvember sl. í öllum þremur málunum.

Alls eiga tæplega 150 aðilar hlut í þeim rúmlega 20 jörðum sem eru á línuleið Suðurnesjalínu 2 og hefur Landsnet náð að semja við þá alla, fyrir utan þá fimm sem eiga þrjár jarðanna sem hér um ræðir.

Suðurnesjalína 2 er um 29 km löng með 87 möstrum og ganga framkvæmdir við línuna vel, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Nú standa yfir framkvæmdir á þeim svæðum þar sem leyfi liggja fyrir og ganga að óskum. Standa vonir til þess að Suðurnesjalína 2 verði komin í rekstur á síðari hluta þessa árs.

Þegar hefur Landsnet greitt rúmar 300 milljónir króna í bætur til landeigenda vegna Suðurnesjalínu 2.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert