Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjun í Gnúpsmálinu

Þórður Már Jóhannesson fjárfestir og Sólveig Guðrún Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, …
Þórður Már Jóhannesson fjárfestir og Sólveig Guðrún Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, voru sýknuð í Landsrétti í nóvember. Samsett mynd

Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Lyfjablóms um áfrýjunarleyfi í Gnúpsmálinu svokallaða.

Á jóladag leitaði Lyfjablóm leyfis réttarins til að áfrýja dómi Landsréttar sem féll 28. nóvember. Um er að ræða mál Lyfjablóms gegn fjárfestinum Þórði Má Jóhannessyni og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Þá staðfesti Landsréttur sýknudóm yfir Þórði og Sólveigu.

Lyfjablóm höfðaði málið á hendur Þórði og Sólveigu til heimtu skaðabóta vegna fjártjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir í viðskiptum með hlutafé í Þúfubjargi ehf. (síðar Gnúpi fjárfestingafélagi hf.) og við hlutafjárhækkun í Gnúpi fjárfestingafélagi hf.

Félagið taldi sig hafa verið beitt sviksamlegum blekkingum og margvíslegum aðgerðum verið beitt til þess að dylja þá háttsemi í lögskiptum aðila. Taldi félagið sig hafa orðið fyrir tjóni upp á 2,3 milljarða.

Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Lyfjablóms um áfrýjun.
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Lyfjablóms um áfrýjun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Taldi málið vera fordæmisgefandi

Í ákvörðun Hæstaréttar kemur fram að með vísan til forsendna héraðsdóms hafi með dómi Landsréttar verið staðfest niðurstaða héraðsdóms um að gögn málsins styddu ekki þá fullyrðingu Lyfjablóms að Þórður og Sólveig hefðu blekkt hann í umþrættum lögskiptum og þar með valdið honum tjóni með saknæmum og ólögmætum hætti svo bótaskyldu varðaði.

Lyfjablóm byggði á því að málið varðaði sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans, enda næmu dómkröfur í málinu 2,3 milljörðum króna. Þá taldi félagið að úrslit málsins hefðu verulegt almennt gildi og væru án nokkurs vafa fordæmisgefandi á sviði skatta- og hlutafélagaréttar, meðal annars um innborgað hlutafé og ólögmætar úttektir úr félagi, sem og lagareglur um meðferð eigna hlutafélaga. Að lokum taldi Lyfjablóm niðurstöðu Landsréttar bersýnilega ranga enda væri hún með öllu órökstudd og byggð á misskilningi héraðsdóms um tiltekin lykilskjöl í málinu.

Skilyrðum ekki fullnægt og dómur Landsréttar ekki rangur

Hæstiréttur segir að að virtum gögnum málsins verði talið að hvorki sé fullnægt því skilyrði 1. mgr. 176. gr. laga um meðferð einkamála að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Lyfjablóms í skilningi ákvæðisins.

„Þá verður ekki talið að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað,“ segir í ákvörðun Hæstaréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert