Samkeppniseftirlitið segir Símann hafa brotið gegn sátt sem fyrirtækið gerði við stofnunina árið 2015 og var ætlað að koma í veg fyrir að Síminn gæti nýtt hið breiða þjónustuframboð sitt til þess að takmarka samkeppni almenningi til tjóns.
Þetta segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.
Hæstiréttur dæmdi í dag Símann til að greiða 400 milljónir í sekt í deilu sem tengist sölu áskrifta að útsendingum frá ensku úrvalsdeildinni.
Síminn hefur einnig sent frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið segir dóm Hæstaréttar vera vonbrigði og að hann muni hafa áhrif á afkomu fyrirtækisins.
„Brot Símans fólst í því að bæta sjónvarpsstöðinni Símanum Sport með Enska boltanum við svonefndan Heimilispakka um leið og fyrirtækið hækkaði verð fyrir áskrift að pakkanum. Á þessum tíma voru áskrifendur Heimilispakkans á fjórða tug þúsund og lýsti forstjóri Símans þessari samtvinnun á þjónustu fyrirtækisins þannig að með henni fengi það „40 þúsund áskrifendur strax frá fyrsta degi“. Áskrifendur Heimilispakkans gátu ekki afþakkað sjónvarpsstöðina nema segja upp áskrift að pakkanum, en þurftu þá að greiða mun hærra verð fyrir þá fjarskiptaþjónustu sem þeir höfðu áður fengið með honum,“ segir í tilkynningunni.
Taldi Samkeppniseftirlitið að í þessu hefði falist alvarlegt brot Símans og var sú niðurstaða staðfest í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem Hæstiréttur hefur nú staðfest.
„Í dómi Hæstaréttar kemur fram að áskrifendur Heimilispakkans hafi ekki átt þess kost að hafna aðgangi að sjónvarpsstöðinni sérstaklega og halda öðrum þjónustuþáttum, bæði fjarskiptaþjónustu og annarri sjónvarpsþjónustu pakkans, nema með því að segja upp áskriftinni. Hefðu kaup þeirra á stökum þjónustuþáttum Símans óhjákvæmilega haft umtalsverða hækkun á verði í för með sér.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Síminn eigi að þekkja til hlítar efni og markmið þeirra sátta sem hann hafi gert við Samkeppniseftirlitið. Hafnaði Hæstiréttur þeirri málsástæðu Símans að orðalag sjónvarpssáttarinnar væri óskýrt eða að uppi væri vafi um skýringu hennar. Í því sambandi var litið til þess að Síminn hafði óskað eftir því að skilyrði sáttarinnar yrðu felld niður, en í ljósi skilyrðanna og ítarlegs rökstuðnings í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins fyrir því að hafna þeirri málaleitan hafi fyrirtækinu mátt vera fyllilega ljóst að umrædd viðskiptakjör stönguðust á við skilyrði sáttarinnar.“
Þá kemur fram í tilkynningunni að upphafleg rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi hafist í kjölfar kvörtunar Sýnar (Vodafone) árið 2019.
Sömuleiðis kemur fram að upphafleg ákvörðun eftirlitsins hafi verið að Símanum yrði gert að greiða 500 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafi hins vegar lækkað sektina í 200 milljónir króna.
„Bæði Síminn og Samkeppniseftirlitið höfðuðu mál vegna niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hvort tveggja, héraðsdómur og Landsréttur, höfnuðu því að háttsemi Símans fæli í sér brot. Hæstiréttur hefur nú snúið við þeirri niðurstöðu og hækkað sekt Símans í 400 milljónir króna, sem er tvöföldun á fjárhæð þeirrar sektar sem áfrýjunarnefnd kvað á um í úrskurði sínum. Í forsendum dóms Hæstaréttar er vísað til mikilvægis þess að tryggja varnaðaráhrif.“
Þá segir að í samkeppnislögum sé gert ráð fyrir því að Samkeppniseftirlitið verji almannahagsmuni meðal annars með því að framfylgja boðum og bönnum laganna og ákveða aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja.
„Með breytingu sem var gerð á samkeppnislögum á árinu 2011 var Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að höfða mál vegna úrskurða áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Var það talið mikilvægt að stofnunin hefði möguleika til að gæta hagsmuna almennings í samkeppnismálum fyrir dómi.
Niðurstaða Hæstaréttar staðfestir mikilvægi málsóknarheimildarinnar en gagnrýnisraddir hafa verið háværar um að stofnunin eigi ekki að hafa slíka heimild.“
Í tilkynningu frá Símanum segir að fyrirtækið telji dóminn veruleg vonbrigði, þá sérstaklega þar sem Hæstiréttur sneri við ði dómi Héraðsdóms og Landsréttar sem og að hluta úrskurði áfrýjunarnefndar.
„Um er að ræða sams konar tilboð og tíðkast hafa á markaði af öðrum félögum sem bundin eru af sömu ákvæðum og Síminn. Fyrir liggur að Síminn heldur ekki á sýningarrétti að ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta tímabili og ljóst er að niðurstaða dómsins er fordæmisgefandi um það hvernig unnt er að selja aðgang að ensku úrvalsdeildinni,“ segir í tilkynningu Símans.
„Þessi dómur Hæstaréttar mun hafa áhrif á afkomu Símans þar sem sektin verður gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2025. Áður birt EBITDA spá Símans fyrir árið 2025 var 7,0 til 7,4 milljarðar króna og EBIT spá var 3,6 til 4,0 milljarðar króna. Með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar er EBITDA spá Símans 6,6 til 7,0 milljarðar króna og EBIT spá 3,2 til 3,6 milljarðar króna,“ segir þar enn fremur.