Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar munu opna að fullu aftur á Víkurbraut 62 í Grindavík mánudaginn 10. mars.
Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar en stór hluti starfseminnar hefur frá rýmingu bæjarins þann 10. nóvember í fyrra verið í Tollhúsinu í Reykjavík, meðal annars vegna nálægðarinnar við Grindavíkurnefndina.
Í bókun bæjarstórnar Grindavíkur segir:
„Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að bæjarskrifstofur sveitarfélagsins flytji alfarið úr Tollhúsinu heim til Grindavíkur. Bæjarstjórn telur þessar breytingar vera gott skref til stuðnings við uppbyggingu í Grindavík. Grindavíkursamfélagið er sterkt og metnaðarfullt um uppbyggingu bæjarfélagsins, við erum meðvituð um stöðuna en hugsum vongóð heim.“