„Borgin stendur frammi fyrir því að endurskoða og jafnvel afturkalla fyrri ákvarðanir og heimildir fyrir framkvæmdum. Reglur stjórnsýsluréttar gera það að verkum að þar þarf borgin að fara um með ýtrustu gát og tryggja að nýjar ákvarðanir í málinu valdi ekki réttarspjöllum fyrir aðra hagsmuni en þeim er ætlað að vernda. Tafirnar í málinu skýrast mögulega af því að borgin þarf að gæta sín að uppfylla almennar reglur um slíkar framkvæmdir og reglur stjórnsýslulaga á öllum stigum máls.“
Þetta segir Erlendur Gíslason lögmaður Búseta sem telur að borgin hafi farið of geyst þegar leyfi voru veitt fyrir Álfabakka 2 og því þurfi hún að bakka.
Framkvæmdir við vöruhúsið að Álfabakka 2 halda áfram þrátt fyrir að framkvæmdir við kjötvinnsluna hafi verið stöðvaðar. Sú ákvörðun varð til þess að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði stjórnsýslukæru Búseta frá. Frá þeim tíma hefur verið unnið að öðrum verkþáttum hússins nema kjötvinnslunni á meðan beðið er eftir endanlegri ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík.
Erlendur vísar til meginreglna stjórnsýslulaganna sem hann segir að betur hefði verið gætt að á fyrri stigum þar sem margt virðist hafa farið fram hjá borginni og byggingin risið eins og raun ber vitni.
„Ljóst er að miklir hagsmunir eru undir og borgin þarf að meta samspilið hér á milli málshraðareglu stjórnsýsluréttar, þ.e. að afgreiða mál eins fljótt og auðið er, og rannsóknarreglunnar. Þannig þarf að gæta vel að rannsókn málsins og hvort skilyrði eru til að afturkalla fyrri ákvörðun en þegar hagsmunir eru miklir og framkvæmdin heldur áfram eru meiri kröfur til þess að borgin flýti málsmeðferð til að takmarka mögulegt tjón.“
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag