Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómari segir að sú ákvörðun Alþingis að fela Fangelsismálastofnun ákvörðun um hvort dæmdir menn geti afplánað refsidóma í formi samfélagsþjónustu sé skýrt brot á 2. grein stjórnarskrárinnar. Með þessu fyrirkomulagi sé framkvæmdavaldinu gert kleift að gera dómsorð og refsiákvörðun dómstóla að engu.
Þetta kemur fram í viðtali við Helga í viðtali í Spursmálum sem aðgengilegt er á mbl.is.
Samfélagsþjónusta var tekin upp með lögum frá Alþingi 1995 og var farin önnur leið en í öllum nágrannaríkjum Íslands hvað þetta varðar og hafa dómendur hvorki aðkomu að því hér á landi hverjir geti tekið út refsingu í formi samfélagsþjónustu né heldur hafa þeir möguleika á að beita úrræðinu við ákvörðun refsinga.
Helgi gagnrýnir þetta og segir um leið að ramminn um það hversu löngum fangelsisdómum megi umbreyta í samfélagsþjónustu hafi einnig verið þaninn út fyrir þau mörk sem eðlilegt getur talist.