Í frumkvöðlasetrinu The Innovation House á Eiðistorgi er hin keníska Grace Achieng með litla skrifstofu þar sem tískufyrirtæki hennar Gracelandic er með aðsetur. Grace tekur á móti blaðamanni sem virðir fyrir sér fullar slár af kjólum, skyrtum og samfestingum sem þar hanga, allt úr fínasta hrásilki eða hör. Fötin eru öll hönnuð af Grace, framleidd í Tyrklandi og Rúmeníu.
Þegar Grace var 25 ára og bjó enn í Kenía, kynntist hún íslenskum manni á stefnumótasíðu. Hann lagði síðan leið sína til Kenía að hitta hana. Ekki liðu nema þrír dagar þar til þau giftu sig.
„Við giftum okkur eiginlega án þess að ég hafi planað það,“ segir Grace og segir söguna af þessari snöggu giftingu.
„Þegar hann kom til Kenía fór hann að spyrja mig um lögin varðandi giftingar en ég hafði enga hugmynd um þau. Ég spurði vin minn hvort hann vissi eitthvað en hann vissi ekkert heldur. Hann hringdi svo í mig og sagði mér frá vini sínum sem vann hjá sýslumanni og benti okkur á að við gætum farið til hans til að fá frekari upplýsingar. Við mættum og vorum allt í einu komin í röð fólks sem var að gifta sig. Við vissum það ekki, en þegar við áttuðum okkur á því horfðum við hvort á annað og spurðum: „Eigum við kannski bara að gifta okkur?““
„Ég sagði engum frá þessu í byrjun, ekki vinkonum eða mömmu og pabba. En svo fórum við í ferðalag og keyrðum heim til mömmu og pabba viku eftir giftinguna. Mamma varð svo brjáluð,“ segir hún kímin á svip.
„Ég var skotin í honum en þekkti hann ekki neitt, en við vorum bæði mjög hvatvís og þetta var skyndiákvörðun. Þetta var árið 2010 og Eyjafjallajökull nýbúinn að gjósa og mamma spurði mig hvort ég vildi fara til Íslands og deyja,“ segir hún og hlær dátt.
Þremur mánuðum síðar flaug Grace til Íslands með nýja eiginmanninum og flutti beint á Sauðárkrók, hans heimabæ.
„Það var mjög skrítið að búa svona úti í sveit. Ég fékk strax innilokunarkennd og ég fann mig ekki þarna. Ég vaknaði á morgnana umlukin fjöllum og datt niður í djúpan dal. Sambandið var mjög erfitt, fyrir okkur bæði, en ég var ekki að aðlagast þessu sveitaþorpi, komandi úr stórborginni Mombasa,“ segir hún.
„Fólk talaði í kringum mig en ég skildi ekki íslensku og fannst þetta frekar skrítið og lífið var allt mjög erfitt. Ég fékk vinnu í fiskvinnslu og var þar í nokkra mánuði. Ég vildi bara snúa við og fara heim, en fljótlega skildi ég við hann og fór til Reykjavíkur. Það var auðvelt fyrir mig að ganga út úr þessu sambandi því ég hafði upplifað óstöðugleika sem barn og vissi hvað ég vildi. Ég fór til Reykjavíkur og fékk hjálp við að finna vinnu því mig langaði að vera lengur hér. Ég vann alls konar láglaunastörf en mig langaði mest að vinna í tískuiðnaði því þegar ég var unglingur í Kenía var ég strax byrjuð í viðskiptum og fannst það gaman. Sextán ára gömul hafði ég safnað vasapeningi sem ég átti að nota í strætó og fór á útimarkaði og keypti föt og seldi síðan skólasystrum mínum. Mér fannst svo gaman að sjá hvernig fólki leið þegar það fékk falleg föt,“ segir hún.
„Í háskólanum í Mombasa hafði ég stundum verið að vinna sem stílisti til að vinna mér inn smá pening. Þannig að þó ég hafi lært markaðsfræði langaði mig að vinna í einhverju sem tengdist tísku en fékk ekki vinnu í þeim geira. Ég fór svo að vinna á leikskóla og vann þar mjög lengi en fannst alltaf eitthvað vanta. Mig langaði í áskorun og ég var föst; þetta var ekki það sem mig langaði að gera.“
„Ég keypti mér saumavél og efni og byrjaði að skoða YouTube og Pinterest og alls konar síður sem kenndu mér að sníða, skera og sauma. Ég fór líka á námskeið til að læra að koma mínum hugmyndum á framfæri. Mér fannst mig vera að dreyma; að þetta væru bara draumórar, en á þessum tíma átti ég lítið barn,“ segir Grace en hún var í sambúð með íslenskum manni í þrjú ár og eignaðist með honum dótturina Tönju sem í dag er þrettán ára.
„Ég vissi að ég þurfti að sjá fyrir mér og dóttur minni og átti í raun að vinna bara níu til fimm en leið ekki vel. Árið 2020 ákvað ég að stökkva út í djúpu laugina og stofnaði fyrirtæki því ég vissi að ef ég myndi ekki stofna það, myndi ég ekki taka það alvarlega. Ég stofnaði þá Gracelandic,“ segir Grace, en strax árið 2015 hafði hún hannað míní-línu og komst með fötin á sýningu; föt sem hún hannaði sjálf og saumaði.
„Þá vissi ég að ég vildi gera þetta og skráði fyrirtækið formlega árið 2020 og fór að gera markaðsrannsóknir. Þannig lærði ég meira um tískubransann og um „slow fashion“ og fann að ég vildi hafa mína tísku þannig. Ég hafði alltaf verið að teikna eitthvað meðfram vinnu minni á leikskóla og fór svo að vinna með grafískum hönnuði sem breytti teikningum mínum og setti á tölvutækt form. Á þessum tíma var ég hætt að vinna á leikskóla en ég lenti í bílslysi og gat nýtt smá bætur til að lifa af og vinna að fyrirtækinu. Í júlí 2021 opnaði ég svo formlega Gracelandic á netinu,“ segir Grace, en þess má geta að hún kláraði BA-próf í íslensku sem annað mál. Í dag er hún í starfsnámi hjá Advania og í fullu meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræðum. Grace er með gífurlega gott vald á íslensku og talar afar fallegt mál.
„Hjá Advania er ég að skrifa sjálfbærniskýrslur og vinn í öllu sem tengist sjálfbærni og hringrásarkerfum. Ég vinn líka á netinu við Gracelandic og tek hér á móti konum sem vilja koma í mátun. Það er nóg að gera! Svo er ég stjórnarkona í FKA, Félagi kvenna í atvinnulífinu. Mér finnst alltaf gaman að vera í fleira en einu í einu.“
„Í fyrra útskrifaðist ég með BA í íslensku sem annað mál. Til þess að geta talað vel, fannst mér ég verða að fara í námið því þótt það séu til alls konar námskeið og alls konar öpp, þá kenna þau manni aldrei að tala íslensku nógu vel. Þetta var góð leið til að læra ritmál, talmál og sögu Íslands,“ segir hún.
Grace fann fljótt að hún vildi kynnast konum í frumkvöðlastörfum og í atvinnulífinu. Einhver benti henni á FKA og sótti hún þá um að gerast meðlimur.
„Ég byrjaði strax að mæta á viðburði og það var svo gaman. Fólk var svo opið og ég fékk strax mentor. Ég lærði mjög margt í viðskiptum og markaðssetningu við að vera í þessu umhverfi og það víkkaði minn sjóndeildarhring,“ segir hún.
„Ég kynntist fullt af íslenskum konum en það var líka nefnd fyrir konur af erlendum uppruna, en hún var ekki virk. Þannig að ég bara ákvað að gera eitthvað, fyrst við áttum þennan vettvang. Ég fann konur og setti saman hóp og var valin formaður nefndarinnar. Síðan þá hafa fleiri konur bæst við og nefndin tók flugið og er nú mjög virk. Ég er núna í aðalstjórn FKA,“ segir hún.
„Þó ég sé nú í umhverfis- og auðlindafræði og langi að fá starf við hæfi að loknu námi, ætla ég líka að halda áfram með Gracelandic. Ég stefni einnig að því að veita fyrirtækjum ráðgjöf um sjálfbærni og lífsferilsgreiningu, hjálpa þeim að innleiða sjálfbærar lausnir og draga úr umhverfisáhrifum sínum. Ég er svo verkefna- og árangursdrifin. Mig langar að vera með alls konar verkefni til að vinna að. Afi minn og frænka mín eru mínar fyrirmyndir en þau voru mjög farsæl og voru alltaf með margt í gangi í einu, þó þau hafi komið úr mjög erfiðu umhverfi og séu alin upp í fátækt. Þau létu það ekki stoppa sig. Ég er eins. Ég er opin fyrir tækifærum.“
Ítarlegt viðtal er við Grace Achieng í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.