Ráðherra fellur frá ráðstöfun 600 milljóna

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra.
Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra. mbl.is/Eyþór

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljóna króna af fjárheimildum ársins 2025 og lagt til við fjármála- og efnahagsráðherra að horft verði til þess við gerð frumvarps til fjáraukalaga.

Um er að ræða 250 milljónir króna af fjárheimildum á málefnasviði 15 Orkumál og 350 milljónir króna af fjárheimildum á málefnasviði 17 Umhverfismál.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

Þar segir enn fremur að ákvörðunin um lækkun útgjalda sem þessu nemi sé liður í hagræðingarátaki ríkisstjórnarinnar. Með henni sé stutt við markmið um að ekki skuli ráðist í nein ný útgjöld árið 2025 án þess að aflað sé aukinna tekna eða hagrætt á móti.

Kemur ekki niður á kjarnastarfsemi ráðuneytisins

„Hagræðingarátak ríkisstjórnarinnar tekur til alls stjórnkerfisins. Fagstofnanir og starfsfólk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hafa tekið virkan þátt í vinnunni og fram undan eru mikilvæg hagræðingar- og sameiningarverkefni sem munu skila sér í sparnaði, bættri stjórnsýslu og léttari reglu- og stjórnsýslubyrði á komandi árum. Ég lagði þó líka áherslu á það þegar ég steig inn í ráðuneytið að útgjöld yrðu lækkuð strax á yfirstandandi ári til að senda skýr skilaboð og styðja við markmið ríkisstjórnarinnar um bætta afkomu ríkisins. Með markvissri forgangsröðun verkefna höfum við skapað svigrúm til að skila strax 600 milljónum króna án þess að það komi niður á kjarnastarfsemi ráðuneytisins og málefnasviða sem undir það heyra,“ er haft eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert