Rafrænar kosningar til skoðunar: „Just do it!“

Ljósmynd/Colourbox

„Hefja skal inn­leiðingu á ra­f­ræn­um kosn­ing­um. Mælt er með að byrja með utan­kjör­fund­ar­at­kvæðagreiðslum sem eru dýr­ar í fram­kvæmd.“

Til­laga þessi er meðal þeirra sex­tíu sem hagræðing­ar­hóp­ur stjórn­valda kynnti á blaðamanna­fundi í gær en þær eiga að spara rík­is­sjóði 71 millj­arð króna á ár­un­um 2026 til 2030.

Hagræðingarhópur stjórnvalda leggur til að hafin verði innleiðing rafrænna kosninga …
Hagræðing­ar­hóp­ur stjórn­valda legg­ur til að haf­in verði inn­leiðing ra­f­rænna kosn­inga hér á landi. Byrjað verði á at­kvæðagreiðslu utan kjör­fund­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Áætluð hagræðing ekki met­in

Áætluð áhrif til­lög­unn­ar á rekst­ur rík­is­sjóðs eru ekki met­in en í mörg­um til­vik­um er ekki unnt að meta áhrif­in sök­um tíma­skorts, eins og fram kem­ur í grein­ar­gerð um til­lög­ur hóps­ins.

Ra­f­ræn­ar kosn­ing­ar var ein af til­lög­un­um sem bár­ust stjórn­völd­um frá al­menn­ingi í Sam­ráðsgátt.

„Leyfa ra­f­ræn­ar kosn­ing­ar. Þjóðskrá Íslands er með kerfi til­búið sem er bæði vottað og sann­reynt. Hagræðing­in af ra­f­ræn­um kosn­ing­um er um 500 m.kr. Kerfið er til­búið - þannig að „just do it!“ kom þar m.a. fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert