Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gerði stöðu fjölmiðla á Íslandi að umtalsefni á Alþingi í dag. Hann sagði að þeir byggju við „stórkostlega brenglað rekstrarumhverfi.“
Þetta kom fram undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Snorri vísaði í nýja úttekt Viðskiptaráðs á umhverfi fjölmiðla á Íslandi.
„Ég vildi vekja athygli þingheims og ríkisstjórnarinnar á henni og lesa það sem kemur fram í þessari úttekt með opnum hug. Staða fjölmiðla á Íslandi er sú að þeir búa við stórkostlega brenglað rekstrarumhverfi. Ríkismiðillinn gnæfir yfir öllu, vex ár frá ári eins og púkinn á fjósbitanum á meðan einkamiðlar lepja margir dauðann úr skel,“ sagði Snorri.
Hann bætti við að ríkisvaldið bæri mikla ábyrgð á þessu ástandi og benti á að ríkisstjórnin gæti breytt miklu um stöðu Ríkisútvarpsins. Ekkert heyrðist þó af slíkum áformum.
„Ríkisstjórnin treystir sér þó í eitt og það er að hagræða gagnvart frjálsu fjölmiðlunum, lækka styrkina til stærstu miðlanna sem fá um 100 milljónir hvor, mbl.is og Vísir, vel að merkja vinsælli vefir en vefur Ríkisútvarpsins sem fær sextíufalda upphæð á við þessa miðla. Nú á að lækka þennan bútasaumsstyrk til Morgunblaðsins og Vísis en ekki er greint frá því hvers vegna það er gert,“ sagði Snorri.
„En þó ber svo grunsamlega við um þessar sömu mundir að þingmaður ríkisstjórnarinnar eða úr stjórnarflokkunum fer að tala fjálglega um það í fjölmiðlum að nú þurfi að lækka ríkisstyrkinn til Morgunblaðsins af þeim sökum, eins og hann lýsir því, að þar eru pólitískar áherslur sem eru honum ekki að skapi. Þetta er allt saman áhugavert samhengi ef maður reynir að draga þetta saman og ég held, frú forseti, að engum ætti að dyljast að þetta ástand er í hæsta máta óheilbrigt,“ sagði Snorri jafnframt og bætti við að Miðflokkurinn hvetji ríkið til að draga úr umsvifum sínum alfarið á fjölmiðlamarkaði.