Hefur rætt við Hegseth og vill tala við Rubio

Þorgerður Katrín greindi frá samtölum við Pete Hegseth og segist …
Þorgerður Katrín greindi frá samtölum við Pete Hegseth og segist hafa óskað eftir samtali við Marco Rubio. Samsett mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur átt samtöl við Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.

Frá þessu greindi hún í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag og bætti við að hún hefði óskað eftir að fá að ræða við bandaríska utanríkisráðherrann Marco Rubio.

„Við þurfum að varðveita og efla samband okkar, ekki bara við Evrópusambandið, Bretland, Noreg, heldur ekki síður við Bandaríkin,“ sagði Þorgerður Katrín eftir fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þingmanns Miðflokksins.

Býst ekki við breytingu gagnvart Bandaríkjunum

Sagðist hún hafa átt samtöl við Pete Hegseth varn­ar­málaráðherra Bandaríkjanna og minnti á að í fyrri forsetatíð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefðu samskipti Íslands við Bandaríkin orðið meiri og skilningurinn milli landanna hafi verið mikill.

Kvaðst hún hafa enga trú á að breyting yrði þar á.

Sigmundur hafði spurt hvað Þorgerður hefði gert til að hafa bein samskipti við Bandaríkjamenn og minna á sérstöðu Íslands í NATO og tvíhliða varnarsamning Íslands við Bandaríkin.

Hvort hún hefði minnt á það að Ísland væri ekki aðili að Evrópusambandinu og ætti því ekki óvart að lenda í refsitollum Bandaríkjanna gagnvart ESB, enda Bandaríkin í töluverðum plús í viðskiptajöfnuði gagnvart Íslandi.

Samtal „á gangi eða í lyftu“

Sigmundur sagðist ánægður að heyra að Þorgerður hefði átt „þó ekki væri nema stutt samtal, hugsanlega einhvers staðar á gangi eða í lyftu, við varnarmálaráðherra Bandaríkjanna“.

Þá ítrekaði hann spurninguna um hvaða formleg samskipti hefðu farið fram við bandarísku ríkisstjórnina, við bandarísk stjórnvöld, og til stæði að bæta þar í.

„Stendur til að eiga samtal við utanríkisráðherra Bandaríkjanna og eftir atvikum hvort hæstvirtur forsætisráðherra tali við forsetann beint?“ spurði hann.

Sagði hann mikilvægt að hafa sem mest og tryggust formleg samskipti, „þótt ekki hafi verið annað á hæstvirtum ráðherra að heyra en að varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hafi staðfest skilning á sambandi Íslands og Bandaríkjanna“.

Rætt um að styrkja sendiráðið í Washington

Svaraði Þorgerður annarri fyrirsurn Sigmunds og sagði samskipti við Bandaríkjastjórn vera meginverkefni íslenska sendiráðsins í Bandaríkjunum, „og við höfum líka rætt um það að styrkja sendiráðið enn frekar, færa til með áherslu nákvæmlega á þetta“.

Þá hafi hún þegar kallað eftir samtali við Marco Ru­bio ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, í von um að undirstrika mikilvægi sambandsins.

„Það er síðan auðvitað margt sem við þurfum að huga að. Ég man það að nokkrum dögum eftir innrás Rússa í Úkraínu þá kölluðum við í Viðreisn eftir m.a. heildstæðu mati á því hvernig við getum látið varnarsamninginn virka, af því að það er mikið í húfi að hann virki í raun í ýmiss konar aðstæðum,“ sagði hún.

Það mat eigi eftir að framkvæma og því vilji hún m.a. flýta stefnunni og stefnumótuninni um öryggis- og varnarstefnu Íslands. Auk annarra aðgerða muni hún senda bréf til allra þingflokka þess efnis að það verði þverpólitískt samstarf í þessu mikilvæga máli.

„Ég held að það sé mikið í húfi fyrir okkur einmitt, að við varðveitum samstöðuna og það komi allir flokkar að þeirri stefnumótun til þess að þetta vari lengur en bara líftíma einnar ríkisstjórnar, og fyrst og síðast undirstriki varnar- og öryggishagsmuni Íslands til skemmri og lengri tíma. Ég kalla eftir þeirri samstöðu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert