Konur taki þátt í friðarviðræðum og öryggisáætlunum

Þorbjörg Sigríður setti fundinn og fjallaði um stefnu ríkisstjórnarinnar í …
Þorbjörg Sigríður setti fundinn og fjallaði um stefnu ríkisstjórnarinnar í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Ljósmynd/Aðsend

„Ég mun sjá til þess að jafnrétti verði forgangsmál í mínu ráðuneyti. Ofbeldi gegn konum og stúlkum er því miður allt of algengt og við munum berjast gegn því.“

Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á fundinum Konur, friður og öryggi í breyttum heimi í Mannréttindahúsinu í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtök stóðu fyrir fundinum í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi.

Til umræðu var aðkoma kvenna að friðarferlinu og að standa þurfi vörð um réttindi kvenna og stúlkna á ófriðartímum.

„Konur þekkja best til eigin mála

Þorbjörg Sigríður setti fundinn og fjallaði um stefnu ríkisstjórnarinnar í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

Sagði ráðherrann að unnið sé eftir framkvæmdaáætlun sem snúist um aukna þátttöku kvenna hvað varðar friðarumræður og öryggismál.

„Ísland hefur nýlega tekið sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og þar ætlum við okkur að vera málsvarar jafnréttis og friðar. Við munum vera málsvarar kvenna og stúlkna í öllum þeirra margbreytileika,“ sagði ráðherrann.

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, fór með fundarstjórn og stýrði pallborðsumræðum.

Að sögn Stellu er ekki unnt að bíða lengur með málefni kvenna, friðar og öryggis.

„Það þarf að sjá til þess að konur taki þátt í friðarviðræðum og öryggisáætlunum, því það þarf að breyta ríkjandi hugarfari og konur þekkja best til eigin mála,“ sagði hún.

Friðarumræður endurspegli samfélagið

Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Olena Suslova, stofnandi Women's Information Consultative Center í Úkraínu og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri sátu í pallborði og fóru hver með sitt örerindi.

Clara Ganslandt lagði áherslu á að friðarumræður endurspegli samfélagið og til að tryggja langtímafrið þurfi konur að hafa aðkomu að ferlinu sem og aðgang að þjálfun og fræðslu á sviði öryggismála og friðargæslusveitir þurfi að vera inngildandi og á jafnréttisgrundvelli.

Þá talaði hún um vinnu ESB við innleiðingu ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að því að konur þurfi að vera í forystuhlutverki við ákvarðanatöku um réttindi kvenna og stúlkna.

„Fjöldi kvenna sem býr við óöryggi fer vaxandi, eða um 35% allra. Konur eru oft fjarverandi þegar kemur friðarviðræðum eða áætlanagerðum og því þurfum við að breyta ef við ætlum að ná árangri.“

„Karlar í leiðtogastöðum tali um þessi mál“

Jónas talaði þá um að málefni fundarins, konur, öryggi og friður, hafi aldrei verið eins mikilvægt og í dag.

„Það er því mikilvægt að konur séu til staðar á öllum sviðum. Þannig erum við líklegri til að finna betri lausnir,“ sagði hann.

Spurður um hlutverk karla í þessum umræðum sagði Jónas mikilvægt að líta ekki á málaflokkinn sem einkamál kvenna.

„Það er mjög mikilvægt að karlar í leiðtogastöðum tali um þessi mál.“

Lögreglan hafi ekki getað aðstoðað fatlaðar konur

Sigríður Björk ríkislögreglustjóri fór yfir hlutverk lögreglunnar sem þjónustustofnun og sagði að huga verði að því að enginn sé skilinn eftir.

Rifjaði hún þá upp dæmi um heimsóknir lögreglunnar til fatlaðra kvenna á meðan heimsfaraldurinn reið yfir, þar sem lögreglunni var tjáð að hún byggi ekki yfir færni og þekkingu til að aðstoða fatlaðar konur.

Þetta hafi skipt lögregluna verulegu máli og leitt til endurskoðunar.

„Hvað kennir sagan okkur?“

Olena Suslova talaði frá Úkraínu í gegnum fjarfundarbúnað, byrjaði hún á að þakka Íslandi fyrir stuðning við Úkraínu vegna innrásar Rússlands. Þá ræddi hún tilurð samtaka sinna, Women's Information Consultative Center.

„Það skiptir miklu máli að huga að vernd allra og við hugsum þar sérstaklega um jaðarsetta hópa og eigum í góðu samstarfi við stjórnvöld, félagasamtök og stofnanir. Hvað gerum við? Við sinnum til dæmis mikilli fræðslu um kynbundið ofbeldi og áreitni og reynum að vera afl til góðs.“

Þá sagði hún mikilvægt að veita þeim sem hafa lent á vígvellinum aðstoð.

„Það þarf að hugsa bæði um þá sem eru í orrustu og þá sem eru heima fyrir. Ég hugsaði með mér, hvað kennir sagan okkur? Við þurfum að átta okkur á því að við getum ekki breytt fortíðinni en við getum dregið úr neikvæðum eftirköstum þeirrar þjáningar sem fólk hefur upplifað.“

Ýmsir þættir auki á jaðarsetningu fatlaðra kvenna

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, flutti lokaávarp fundarins.

Sagði hún fatlaðar konur og stúlkur standa frammi fyrir margþættri mismunun en í eðli sínu séu þær ekki berskjaldaðar. Hins vegar auki ýmsir þættir, til að mynda ófullnægjandi löggjöf, skortur á tækifærum og samfélagsleg viðhorf, jaðarsetningu þeirra.

„Fjöldi ríkja á erfitt með að setja fram áþreifanlega stefnu, kerfi og þjónustu byggða á skuldbindingum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fatlað fólk um allan heim verður fyrir auknum neikvæðum áhrifum í mannúðarkreppum. Fatlaðar konur verða fyrir meiri áhrifum af átökum og standa frammi fyrir hindrunum fyrir þátttöku í friðarferlinu,“ sagði hún.

Lausnin sé að fjarlægja hindranir, tryggja aðgengi að friðarferlum og að skipa fatlaðar konur í forystuhlutverk.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Tilefni fundarins var alþjóðlegur baráttudagur kvenna, sem haldinn verður laugardaginn 8. mars.

Þá munu UN Women á Íslandi standa fyrir viðburði í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.

Fullt hús var á fundinum og fór hann fram á ensku.

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert