Kristrún: Góð samskipti við Bandaríkin skipta sköpum

„Við munum líka standa föst á því gagnvart Bandaríkjunum að …
„Við munum líka standa föst á því gagnvart Bandaríkjunum að sérstakir tollar frá ESB nái ekki til Íslands, enda eigum við ofboðslega mikið undir að viðskipti við Bandaríkin séu sem greiðust,“ segir Kristrún. Samsett mynd

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir góð samskipti við Bandaríkjamenn skipta sköpum. Ríkisstjórnin sé meðvituð um mikilvægi þess að lenda ekki á milli í tollastríði Bandaríkjanna og Evrópu.

Hún segir íslensk stjórnvöld munu standa föst á því gagnvart Washington að sérstakir tollar Evrópusambandsins nái ekki til Íslands.

Þá séu bæði hún og utanríkisráðherra búin að leggja áherslu á það, í samskiptum við leiðtoga annarra Evrópuríkja, að aðgerðir í tollastríðinu bitni ekki á hagsmunum Íslands.

Þetta kom fram í máli Kristrúnar á iðnþingi Samtaka iðnaðarins.

Blikur á lofti

„Það eru auðvitað ákveðnar blikur á lofti sem við verðum að horfast í augu við. Og ég er alveg eins og þið meðvituð um þær sviptingar sem hafa orðið á alþjóðasviðinu síðustu misseri. Við í ríkisstjórninni gerum okkur fulla grein fyrir mikilvægi þess að klemmast ekki á milli í tollastríði á milli Bandaríkjanna og Evrópu,“ segir Kristrún og heldur áfram:

„Við vitum að þetta er risastórt hagsmunamál fyrir atvinnulífið. Óvissan er óþægileg. En það sem skiptir máli núna er að vera í virkum samskiptum við leiðtoga Evrópuríkja – og þessi samskipti hafa sjaldan eða aldrei verið þéttari, og þá skiptir líka sköpum að halda áfram góðum samskiptum við Bandaríkin.“

Evrópa megi ekki skaða hagsmuni Íslands

Kristrún segist hafa farið víða í umróti síðustu vikna hið sama eigi við um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Nefnir hún fundi í Munchen og Ósló.

„Og ég get greint frá því hérna, að á hverjum einasta fundi með fulltrúa Evrópusambandsríkja hef ég gætt hagsmuna Íslands sem EES og EFTA-ríkis gagnvart mögulegum aðgerðum í tollamálum,“ segir Kristrún.

„Þar hefur komið fram á öllum þessum fundum ríkur skilningur á að Evrópa megi ekki undir nokkrum kringumstæðum skaða viðskiptahagsmuni Íslands með aðgerðum sem ætlað er að bregðast við tollahækkunum annarra ríkja og þessi skilaboð hafa verið skýr.“

Hún segir utanríkisráðherra jafnframt hafa haldið þessum sjónarmiðum til haga.

„Við munum líka standa föst á því gagnvart Bandaríkjunum að sérstakir tollar frá ESB nái ekki til Íslands, enda eigum við ofboðslega mikið undir að viðskipti við Bandaríkin séu sem greiðust.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert