Kristrún Frostadóttir segir að það geti orðið góður samhljómur með nýrri ríkisstjórn og iðnaðarins í landinu. Hún boðar skýra atvinnustefnu á Íslandi sem verður mörkuð af sérstöku atvinnustefnuráði, sem mun heyra undir forsætisráðherra og verður skipað á þessu ári.
Þetta kemur fram í máli hennar á iðnþingi Samtaka iðnaðarins, sem stendur nú yfir.
„Skilaboð okkar til atvinnulífsins eru skýr, við ætlum að stækka kökuna og styrkja velferðina,“ segir Kristrún.
Hún segir skilja mikilvægi iðnaðar í landinu og að iðnaðurinn hafi fengið ríkisstjórn sem láti verkin tala. Lækkun vaxta sé forgangsatriði ríkisstjórnarinnar. Þá sé mikilvægt að ná sátt um auðlindagjöld og orkuöflun.
Kristrún tekur fram að það sé rétt sem Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafi bent á, það sé uppsöfnuð innviðaskuld í landinu. Segir hún að almenn auðlindagjöld geti verið hluti af lausninni.
„Þá viljum við leiða breiða pólitíska sátt um jafnvægi á milli náttúruverndar og nýtingar á orkuauðlindum.“
Segir hún nýja ríkisstjórn hafa gengið sköruglega til verks í þeim málaflokki.
„Og það er mikilvægt að fólk átti sig á því að þetta skiptir máli, ekki bara fyrir hefðbundna iðnframleiðslu heldur líka fyrir þennan græna iðnað sem er vaxandi, sem er vaxandi, og ýmis önnur svið hugverkaiðnaðar.“
Kristrún segir að tími sé kominn til að lyfta aftur fjárfestingu hins opinbera.
„Þetta er sérstakt áherslumál hjá mér sem forsætisráðherra og það er nauðsynlegt að við hefjumst handa við að vinna að innviðaskuldinni um land allt, en við þurfum líka að hvetja til aukinnar fjárfestingar einkaaðila, þar með talið í innviðum og við erum að skoða ýmsar leiðir í þeim efnum.“
Hún segir mikilvægt að fækka stofnunum og styrkja stjórnsýsluna.
„Og þetta tvennt getur farið saman og raunar fer mjög oft saman. Tækifærin hér eru augljós en það þarf að vanda til verka. Og ég segi það hér inni að það skiptir máli hvernig þetta er gert, hvernig er talað um þetta og að við tölum af virðingu við fólk og um fólk sem sinnir mikilvægum stofnunum hjá hinu opinbera,“ segir Kristrún.
„En það er líka hægt að ná rosalegum árangri og auknum slagkrafti með sameiningum, samrekstri og sterkari stofnunum.“
Þá víkur Kristrún máli sínu að skýrri atvinnustefnu fyrir Ísland, sem hún segir skipta iðnaðinn í landinu miklu máli.
„Þetta snýst ekki um að stjórnvöld vilji stýra öllu eða handvelja hvaða fyrirtæki eða geirar fái að vaxa og dafna. Þetta snýst hins vegar um að horfast í augu við það að stjórnvöld hafa mikil áhrif á umgjörð allrar atvinnustarfsemi. Það eru hvatar, það eru ívilnanir í kerfinu en það er líka regluverk sem ræður ofboðslega miklu um hvaða atvinnugreinar það eru sem þrífast best og byggjast upp.“
Hún segir stjórnvöld í raun og veru alltaf vera að reka einhvers konar atvinnustefnu.
„Spurningin er bara hvort hún sé meðvituð og byggð á einhverri sýn, og mati til dæmis á hagsmunum Íslands, eða hvort hún er tilfallandi og tekur þá helst mið af því hvað hver og einn ráðherra er að dúlla sér í sínu horni, og kannski er einhver annar ráðherra að gera eitthvað allt annað.“
„Hvernig er skattaumhverfið og regluverkið? Hvernig er framleiðnin að þróast? Hvað með álag á innviði? Hver á að vera að fylgjast með þessu? Hver á að taka ábyrgð á þessu? Hvernig viljum við beita ívilnunum og hvernig á ríkið að fjárfesta? Erum við að taka nógu fast á félagslegum undirboðum sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja og grafa undan heilbrigðum vinnumarkaði og sátt í samfélaginu?“ spyr Kristrún.
Kristrún boðar að á þessu ári verði skipað atvinnustefnuráð sem heyri undir hana, forsætisráðherra, sem á að vinna með ríkisstjórn Íslands þvert á ráðuneyti.
Verður sérstök áhersla lögð á sjálfbæran vöxt atvinnugreina, vaxandi framleiðni og vel launuð störf.
„Því annars er hvergi verið að leggja mat á þetta á einhvern heildstæðan hátt eða hvað þá vinna skipulega að stefnumörkun og fylgja henni eftir í framkvæmd.“