Barn á öðru ári lést í bílslysi sem varð í Borgarfirði á fimmtudag er rúta og jepplingur rákust saman.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Vesturlandi.
Slysið varð á gatnamótum Vesturlandsvegar og Vestfjarðarvegar síðdegis.
Fjölmennt lið björgunaraðila var sent á vettvang, lögregla, sjúkralið, slökkvilið ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Líkt og áður sagði, lést barn á öðru aldursári í slysinu, en aðrir eru ekki alvarlega slasaðir.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins.