Einn var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt umferðarslys skammt frá bænum Krossi á milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Tvö ökutæki sem ekið var úr gagnstæðum áttum skullu saman. Tveir voru í hvorri bifreið.
„Einn var úrskurðaður látinn á vettvangi en aðrir voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar undir læknishendur á Landspítalann í Reykjavík,“ segir í tilkynningu.
Lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning um slysið klukkan 11.45 í dag og var strax ljóst að um alvarlegt slys hafi verið að ræða, að sögn lögreglu.
Allt tiltækt lið lögreglu var sent á staðinn, sjúkralið í Fjarðarbyggð og tækjabifreiðar frá Djúpavogi og úr Fjarðabyggð.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar á vettvang. Auk þess voru sjúkraflugvélar sendar austur.
Rannsókn á slysinu stendur yfir og býst lögregla við því að vegurinn verði lokaður fram á kvöld.