Sambandið sendir leiðréttingu vegna launa Heiðu Bjargar

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og formaður Sambandsins.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og formaður Sambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um launakjör Heiðu Bjargar Hilmisdóttur formanns. Segir þar að ekki sé rétt að launakjör hennar hafi hækkað um 170% á síðustu árum. 

Í tilkynningunni segir að þær tölur sem hafa birst í fjölmiðlum og Sambandið gaf frá sér upphaflega gefi ekki rétta mynd af launaþróun formanns Sambandsins.

Morgunblaðið greindi frá því í gær að laun formannsins hefðu hækkað um 170% á tveimur árum. Sú frétt byggði á upplýsingum frá Sambandinu sjálfu.  

Launakerfi breytt

Í tilkynningu Sambandsins segir að breytingar hafi orðið á launakerfi formanns og stjórnar sem tóku í gildi í byrjun árs 2024.

„Fyrir breytingarnar hlaut formaður tvöföld stjórnarlaun fyrir setu í stjórn auk yfirvinnugreiðslna, sem voru að jafnaði 40 yfirvinnutímar á mánuði.“

Segir að þessar yfirvinnugreiðslur hafi hins vegar ekki verið teknar saman í þeim tölum sem Sambandið sendi upphaflega frá sér og gæfu því ekki rétta mynd af heildarkjörum formannsins áður en breytingar voru gerðar. 

„Frá og með árinu 2024 er engin yfirvinna greidd fyrir aukavinnu eða aukafundi. Formanni er greidd föst upphæð sem nemur 50% af þingfararkaupi, enda er um umfangsmikið starf að ræða.“

Mikil aukning funda

Í tilkynningunni segir að mikil aukning hafi orðið í fundarhöldum stjórnar Sambandsins undanfarin ár. 

Áður hafi þeir verið um 10-11 fundir á ári, en árið 2023 voru þeir 24 og árið 2024 voru þeir 20.

Þá hafa nú þegar 11 fundir farið fram á þessu ári. Gert er ráð fyrir að fundir á árinu 2025 verði um 26.

„Til viðbótar við stjórnarfundi fundar formaður reglulega með starfsfólki Sambandsins, sem og með bæjarstjórum og fulltrúum sveitarfélaga um land allt. Formaður situr einnig einnig fjöldan allan af ráðstefnum þar sem flutt eru ávörp í nafni Sambandsins. Að auki á formaður sæti í Þjóðhagsráði og Samstarfsráði ríkis og sveitarfélaga, þar sem unnið er að stefnumálum sveitarfélaga.“

Í tilkynningunni segir að á sama tíma og kjörum formanns og stjórnar var breytt var innleitt nýtt skipurit þar sem samninganefnd var færð beint undir stjórnina, sem hafi aukið vinnu stjórnar og formanns við kjarasamningsgerð.

50% starf

Segir að breyting á kjörum stjórnar og formanns var samþykkt í stjórn Sambandsins eftir vinnu starfskjaranefndar sem tók allt framangreint inn í sína umræðu.

Mat starfskjaranefndar var að vinna formanns Sambandsins samsvari um 50% starfi.

„Það er því ekki rétt að laun formanns hafi hækkað um 170% frá árinu 2023. Sambandi íslenskra sveitarfélaga þykir miður að rangar upplýsingar hafi farið út um kjör formanns á árunum 2022-2023 og biðst innilegrar velvirðingar á því.“

Tilkynningunni fylgir yfirlit yfir laun formannsins síðustu ár og fjöldi funda. 

Launakjör formannsins síðustu ár og fjöldi funda.
Launakjör formannsins síðustu ár og fjöldi funda. Kort/Samband íslenskra sveitarfélaga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert