Trommurnar gefa mér sálarró

Þorsteinn Gunnarsson er heilaskurðlæknir og trommari og segir þetta tvennt …
Þorsteinn Gunnarsson er heilaskurðlæknir og trommari og segir þetta tvennt fari vel saman. mbl.is/Ásdís

Læknirinn Þorsteinn Gunnarsson, sem býr nú og starfar í Svíþjóð, skaust heim til Íslands um síðustu helgi. Ekki til að stunda læknastörf heldur var erindið að spila á tónleikum með The Icelandic Pop Orchestra, en hún er skipuð „gömlum“ kempum úr tónlistinni, þremur læknum og einum hagfræðiprófessor. Þorsteinn er ekki aðeins heilaskurðlæknir, nú yfirmaður á krabbameinsdeild barna, heldur einnig trommari. Hann gaf sér tíma frá stífum hljómsveitaræfingum og vinahittingum til að setjast niður með blaðamanni og ræða ferilinn sem er nokkuð óvenjulegur. Ekki þekkir maður að minnsta kosti marga heilaskurðlækna og hvað þá trommandi heilaskurðlækna!

Slakar á við trommurnar

„Trommurnar komu fljótt til mín; það var eiginlega ekkert val sem ég hafði. Ég man bara varla eftir mér öðruvísi en spilandi á trommur og í raun löngu áður en ég átti trommusett,“ segir Þorsteinn og rifjar upp atburð sem átti eftir að hafa mikil áhrif á barnið.

„Ég man eftir að hafa verið á jólaballi Landsbankans fimm ára gamall á Hótel Sögu. Þar var Raggi Bjarna að spila með hljómsveit og ég settist við sviðið og horfði bara dolfallinn á trommuleikarann. Það var það eina sem ég gerði. Síðan smíðaði ég mínar eigin trommur og eftir að ég nöldraði nógu mikið í foreldrum mínum fékk ég trommusett ellefu ára,“ segir Þorsteinn, en fram að því hafði hann lært á trompet í tónlistarskóla.

Hvað er það við trommurnar sem heillar þig?

„Ég hef oft hugsað um það. Það er eitthvað sem gerir það að verkum að fyrir mig er þetta eins konar hugleiðsla. Fyrir nokkrum árum lærði ég það sem heitir „mindfulness meditation“ en þar lærir maður að slappa af og komast í ákveðið hugarástand. Þegar ég var búinn að læra það hugsaði ég: bíddu nú við, þetta er bara nákvæmlega eins og að sitja bak við trommusettið! Og ég þarf ekki að berjast við að komast í þetta hugarástand því um leið og ég byrja að spila tónlist, jafnvel þó hún sé agressív, þá er ég inni í mér afslappaður. Fyrir mig er þetta ein leið til að slaka á.“

Með Stjórninni í Eurovision

Á unglingsárunum stefndi Þorsteinn á frama í tónlist og fékk ungur að spila með mjög reyndum tónlistarmönnum.

„Frá sextán ára aldri hafði ég þetta að hálfgerðri atvinnu. Ég spilaði með skólanum og öðlaðist bæði reynslu og þekkingu á tónlistarbransanum. Um tvítugt fór ég að hugsa, af því ég er nú frekar jarðbundinn, að þetta væri frekar erfitt starf og ekki mjög praktískt. Ég hafði oft hugsað að ég þyrfti kannski að læra eitthvað annað líka til þess að geta séð fyrir mér. Mamma hafði alltaf sagt það; að tónlist væri fín en ég ætti að passa að læra eitthvað annað líka. Ég fann líka að ég vildi gera eitthvað annað, þó ég væri alls ekki kominn með leiða á tónlist,“ segir Þorsteinn, en hann skráði sig í læknadeildina eftir stúdentinn.

„Ég gat haldið áfram að spila tónlist þó ég væri í læknanáminu. Þegar ég komst inn í læknadeildina, nánast á sama degi, var ég ráðinn í Stjórnina sem var þá ekkert sérstaklega fræg hljómsveit. Við Sigga Beinteins höfðum verið að spila saman í annarri hljómsveit sem hét Kikk og byrjuðum samtímis í Stjórninni ásamt Grétari Örvarssyni. Það var þá húsband á Hótel Íslandi,“ segir hann.

„Þannig að fyrstu árin í læknadeildinni var ég samtímis í Stjórninni og það var mikið að gera,“ segir Þorsteinn og var hann með á fyrstu tveimur plötum Stjórnarinnar og fór auk þess með hljómsveitinni til Zagreb í Eurovision þar sem þau lentu eftirminnilega í fjórða sæti með lag sitt Eitt lag enn árið 1990.

Það glittir í Þorstein bakvið Siggu og Grétar í Eurovision …
Það glittir í Þorstein bakvið Siggu og Grétar í Eurovision árið 1999. Þau lentu í 4. sæti með Eitt lag enn.

„Þegar ég fór svo í sérnám til Svíþjóðar tók ég mér langa pásu frá hljómsveitabransanum og byrjaði í raun ekki aftur fyrr en ég flutti til Kanada.“

Saknar ekki vaktavinnunnar

Í læknanáminu heima hafði Þorsteinn unnið í nokkrar vikur í starfsnámi á Borgarspítalanum undir handleiðslu heilaskurðlækna og fann þá strax að þarna vildi hann vera, en hann hafði einnig fengið brennandi áhuga á heila- og taugakerfinu þegar hann vann að rannsóknarverkefni sínu.

„Ég sá strax að þetta var fjölbreytilegt starf; maður vinnur við móttöku, á stofugangi, á gjörgæslu og við að skera upp. Stundum er maður í aðgerðum sem hafa verið planaðar í marga mánuði og svo í öðrum sem maður vissi ekki að stæðu til nokkrum mínútum fyrr. Læknarnir sem ég vann með á Borgarspítalanum voru rosalega flinkir og miklar fyrirmyndir. Ég heillaðist af þessu,“ segir Þorsteinn sem svo valdi sér sérnám í heilaskurðlækningum í Linköping í Svíþjóð.

Þorsteinn var á vakt í 25 ár sem heilaskurðlæknir en …
Þorsteinn var á vakt í 25 ár sem heilaskurðlæknir en er nú í stjórnunarstöðu á stóru sjúkrahúsi í Svíþjóð.

„Ég sé ekki eftir því. Ég var þarna í fimm ár en langaði svo að læra meira og fór í undirsérgreinanám í heilaæðaskurðlækningum og hryggjarskurðlækningum. Þá fór ég til Toronto í framhaldsnám og ætlaði að vera í tvö ár en bætti svo við tveimur árum og lærði þá innæðalækningar,“ segir Þorsteinn og útskýrir að á þessum tíma hafi verið ljóst að framtíðarmeðferðir hvað varðar æðaaðgerðir í heila yrðu ekki gerðar í opnum heilaaðgerðum, heldur færu þær fram í gegnum nára.

„Eftir fjögur ár í Kanada breyttist lífið og ég kynntist konu minni sem er líka heilaskurðlæknir,“ segir Þorsteinn, en kona hans Paula er frá Argentínu og eiga þau saman tvö börn, tólf og fimmtán ára, en Þorsteinn á einnig þrjá uppkomna syni úr fyrra sambandi.

Þorsteinn og Paula fengu svo bæði vinnu á stórum spítala í borginni Hamilton sem er rétt fyrir utan Toronto.

„Þar fékk ég vinnu, meðal annars sem barnaheilaskurðlæknir en ég hafði alla tíð haft áhuga á því,“ segir Þorsteinn.

Eftir tíu ár í Hamilton fengu hjónin starfstilboð í Svíþjóð og úr varð að þau pökkuðu saman búslóð og tveimur börnum og fluttu yfir hafið til Gautaborgar.

Talið þið hjónin bara um heilann og æðar á kvöldin heima?

Þorsteinn skellir upp úr.

„Já, stundum. Það er mikið rætt. Ég man eitt sinn þegar strákurinn okkar, sem er núna fimmtán, kom inn í herbergi okkar þegar hann var rétt byrjaður að ganga og tala. Paula var þá að sýna mér tölvusneiðmyndir af heila. Þá heyrist í þeim stutta, „oh, it’s just a brain“,“ segir Þorsteinn og hlær.

„Paula vinnur nú á Sahlgrenska en ég er kominn í nýja vinnu og hættur í vaktavinnu. Ég er nú yfirmaður barnakrabbameinslækninga í Gautaborg á barnaspítalanum. Ég þekki vel til krabbameina barna í heila, en er þarna meira í stjórnunarstöðu en þetta er stærsta barnakrabbameinsdeild í Svíþjóð,“ segir Þorsteinn, en hann hefur ekki skorið upp í tvö ár.

„Ég er búinn að vinna svo mikið og það var kominn tími á breytingar. Ég sakna kannski nálægðar við sjúklinga en ég sakna ekki vaktavinnunnar. Ég var á vakt annan eða þriðja hvern dag í 25 ár. Oft var maður á vakt á nóttunni og vann svo daginn eftir. Það kom alveg fyrir nokkrum sinnum að ég var vakandi í þrjá, fjóra sólarhringa. Í Kanada er allt annað og meira vinnuálag en hér.“

Með ábyrgð á lífi fólks

Fæst okkar myndu vilja bera ábyrgð á að krukka í heila fólks og má segja að heilaskurðlæknar séu bókstaflega með líf fólks í höndunum.

„Það er gríðarleg ábyrgð sem fylgir starfinu. Það er erfitt að lýsa því. Þegar maður er yngri og er aðstoðarlæknir er maður alltaf að vinna undir eftirliti og ábyrgð annarra en þegar maður er sérfræðingur er maður sjálfur að bóka eigin aðgerðir. Ég man enn þegar ég bókaði mína fyrstu barnaaðgerð í Kanada. Þó maður sé reyndur sérfræðingur eru kröfurnar mjög miklar og maður ber líka ábyrgð á aðstoðarlæknum sem vinna undir manni. Í mörgum aðgerðum, og ekki síst heilaaðgerðum, er það svo að ef eitthvað fer illa getur allt farið til andskotans. Þá getur fólk látið lífið, lamast eða fengið annan varanlegan skaða fyrir lífstíð,“ segir hann.

„Maður fer í einhvern sérstakan gír og leysir verkefnið. Það verður að leysa það því það er ekki hægt að hætta við. Stundum er það þannig að þegar aðgerðin er búin og dúkarnir eru teknir í burtu, þá sér maður sjúklinginn aftur. Þar undir er þá kannski pínulítið barn og ábyrgðin hellist yfir mann aftur. Og frammi á biðstofu eru kannski fimmtán manns grátandi að bíða eftir fréttum,“ segir Þorsteinn.

Þungarokk heilaskurðlækna

Þorsteinn unir sér vel í Svíþjóð; segir landið fjölskylduvænt og að hann sé ánægður í nýja starfinu.

„Ég spila í þungarokkshljómsveit heilaskurðlækna í Gautaborg; The Locked Inns. Svo er ég að spila í blús- og soul-hljómsveit með Birni Vilhjálmssyni bassaleikara sem hefur búið í Svíþjóð í þrjátíu ár. Það er mjög flott hljómsveit. Svo er ég líka af og til að spila með tveimur söngkonum sem gefa út eigið efni og í þeim verkefnum spilar annar íslenskur bassaleikari, Benedikt Gunnar Ívarsson. Ég kem svo til Íslands í alls kyns sérverkefni, eins og þegar ég kom og spilaði í Hörpu á afmæli Jóns Ólafssonar. Svo er ég í Meik, sem er Kiss-grúppa og ég hef líka komið heim til að spila með Stjórninni og hinum og þessum,“ segir hann.

„Ég held mér alltaf við og þetta gefur mér sálarró.

Ítarlegt viðtal er við Þorstein í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert