Sveitarfélög þurfa mörg hver að gera mun betur til að uppfylla skyldur sínar í gerð reglna um stoð- og stuðningsþjónustu og misræmi er í framsetningu reglnanna eftir sveitarfélögum. Af 64 sveitarfélögum voru aðeins sex sem uppfylltu allar reglur í þessum efnum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála sem birtar voru í dag.
Ríkari þörf er samkvæmt athugun stofnunarinnar á að reglurnar endurspegli þá þjónustu sem sveitarfélög veita í þjónustuflokkum sem falla undir stoð- og stuðningsþjónustu.
Niðurstöðurnar sýna að reglur um notendasamninga voru til staðar hjá einungis 24 sveitarfélögum, Aðeins 16 höfðu sett sér reglur um frístundaþjónustu og einungis sex sveitarfélög höfðu í gildi allar þær reglur sem athugun stofnunarinnar náði til og höfðu þær uppfærðar í samræmi við gildandi lög. Voru það Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Reykjavíkurborg og Svalbarðsstrandarhreppur.
Athygli vekur að sjö sveitarfélög af 64 höfðu ekki sett sér reglur um stuðningsþjónustu og að eitt var ekki með neinar af reglunum í gildi. Ekki er tilgreint í skýrslunni hvaða sveitarfélög það eru sem áttu í hlut. Þess má geta að samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélaginu sem var ekki með neinar af reglunum í gildi að nýlega hafði samningur fallið úr gildi við annað sveitarfélag um þjónustuna.
Athugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýnir að sveitarfélög nálgast gerð og framsetningu reglnanna með mismunandi hætti og þá var ekki alltaf ljóst að hvaða lagagrundvelli reglur voru settar. Nokkuð var um að vísað væri til laga sem fallin eru úr gildi, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála leggur áherslu á að reglur séu aðgengilegar og notendavænar, að bæta mætti miðlægar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um gerð reglna og að samræmd framsetning reglna á landsvísu væri til bóta fyrir sveitarfélög, notendur og eftirlitsstofnanir.
Í athugun stofnunarinnar var kannað hvort sveitarfélög höfðu skilgreint verklag og samræmt mat á stuðningsþörf. Öll sveitarfélög nema fjögur höfðu slíkt til staðar en matið er ekki framkvæmt með samræmdum hætti á landsvísu.
Sveitarfélögin hafa öll fengið sendar sínar niðurstöður úr athuguninni, fengið tilmæli um úrbætur frá stofnuninni þar sem það á við og gefinn frestur á úrbótum til 15. september.