Skiltin ógni umferðaröryggi

Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa hafnað beiðni um að þessu skilti …
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa hafnað beiðni um að þessu skilti á lóð BL við Sævarhöfða verði skipt út fyrir nýtt og betra LED-skilti. mbl.is/Árni Sæberg

Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa hafnað tveimur umsóknum um að breyta eldri auglýsingaskiltum í LED-skilti.

Annað skiltið er á lóð bílaumboðsins BL við Sævarhöfða en hitt á lóð bensínstöðvar við Vallargrund á Kjalarnesi. Í báðum tilvikum var það umsögn Vegagerðarinnar sem gerði útslagið en umræddar breytingar þóttu geta stofnað umferðaröryggi í hættu.

Í umsókn um skiltið á lóðinni við Sævarhöfða kemur fram að það hafi þrjár hliðar og að hver þeirra sé rúmir 25 fermetrar að stærð. Aðeins hafi staðið til að breyta tveimur flötum þess í stafrænt skilti, þeim sem snúa í suðvestur og suðaustur. Til stóð að skiltin yrðu tengd við birtuskynjara sem myndi stýra ljóma þeirra eftir umhverfisbirtu.

Í umsögn Vegagerðarinnar kemur fram að núverandi skilti sé um 100 metra frá miðju Vesturlandsvegar sem sé stofnvegur með mikilli umferð allan sólarhringinn. „Umferðarþungi og tilheyrandi bið vegfarenda á álagstímum gerir það að verkum að athygli ökumanna þarf að vera öll á umferðinni sem býður ekki upp á að sett sé stafrænt skilti í grennd við veginn þar sem það er talið rýra umferðaröryggi,“ segir í umsögninni.

Í umsögn skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar er því tekið neikvætt í umsókn um að breyta umræddu flettiskilti í LED-skilti með vísan í umsögn Vegagerðarinnar. Þá er þess getið í framhjáhlaupi í niðurstöðukafla að bílastæði sunnan við umrætt skilti sé ekki heimilað og teljist það vera óleyfisframkvæmd.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert