Mögulegt að næsta gos verði stærra en fyrri gos

Frá gosinu á Sundhnúkagígaröðinni í desember.
Frá gosinu á Sundhnúkagígaröðinni í desember. mbl.is/Árni Sæberg

Veðurstofa Íslands segir að áfram þurfi að reikna með nýju eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni. Kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og þá hefur rúmmál kviku undir Svartsengi aldrei verið meira frá því að goshrinan hófst í desember 2023.

Þá segir Veðurstofan að það sé mögulegt að næsta eldgos verði stærra en fyrri gos.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Skjálftavirknin verið aðeins austar

„Aflögunarmælingar sýna að landris heldur áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Kvika heldur því áfram að safnast fyrir undir Svartsengi og hefur rúmmál hennar aldrei verið meira eftir að goshrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst í desember 2023.

Samhliða kvikusöfnuninni hefur jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni farið smám saman vaxandi og er svipuð og var fyrir eldgosið í nóvember,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að jarðskjálftavirkni frá síðustu goslokum hafi verið aðeins austar heldur en jarðskjálftavirknin í aðdraganda eldgossins sem hófst 20. nóvember 2024. Jarðskjálftarnir austan við Sundhnúkagígaröðina séu líklega gikkskjálftar af völdum vaxandi þrýstings vegna kvikusöfnunar, en ekki endilega vísbending um líklegan uppkomustað eldgoss þó að ekki sé hægt að útiloka það. Tekið er fram að ítarlegri greining á jarðskjálftagögnunum sem séu í gangi geti varpað skýrara ljósi á orsök þessarar breytingar í staðsetningu jarðskjálftanna.

Stefnir í áttunda gosið á Sundhnúkagígaröðinni

„Í ljósi vaxandi jarðskjálftavirkni samhliða áframhaldandi landrisi og kvikusöfnun er líklegasta sviðsmyndin að þetta kvikusöfnunartímabil endi með kvikuhlaupi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að þar gjósi í áttunda skiptið frá því í lok árs 2023.

Síðasta eldgosi sem stóð í 18 daga lauk 8. desember og því eru liðnir rúmlega þrír mánuðir frá því að gosi lauk. Þetta er lengsta kvikusöfnunartímabil í þessari eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni en í dag eru 111 dagar frá því að síðasta eldgos hófst þar þann 20. nóvember 2024,“ segir í tilkynningunni.

Stærð gossin ræðst af því hversu mikil kvika losnar

„Rúmmál kviku sem hefur safnast undir Svartsengi á þessu tímabili er það mesta sem hefur verið áætlað í kvikuhólfinu frá upphafi þessarar goshrinu í desember 2023. Þess vegna er mögulegt að ef til eldgoss kemur á næstu dögum eða vikum geti það orðið sambærilegt eða stærra en eldgosið í ágúst 2024 sem er það stærsta hingað til að rúmmáli. Byggt á fyrri atburðum mun stærð mögulegs eldgoss þó ráðast af því hversu mikil kvika losnar úr kvikuhólfinu þegar eldgos byrjar. Að svo stöddu er erfitt að segja til um stærð næsta atburðar með vissu,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert