Rannsaka manndráp á Suðurlandi

Samkvæmt heimildum mbl.is þá tengist lögregluaðgerð í Þorlákshöfn í nótt …
Samkvæmt heimildum mbl.is þá tengist lögregluaðgerð í Þorlákshöfn í nótt rannsókninni. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Sigurður Bogi

Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar andlát karlmanns sem lést snemma í morgun. Áverkar á honum benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og fimm eru í haldi lögreglu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.

Lögreglan naut liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra við lögregluaðgerð í Þorlákshöfn í nótt sem samkvæmt upplýsingum mbl.is tengist rannsókninni. Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, staðfestir í samtali við mbl.is að sérsveitin hafi tekið þátt í aðgerðinni en getur ekki staðfest að aðgerðin tengist rannsókn á andláti karlmannsins.

„Fimm aðilar eru í haldi lögreglu í tengslum við rannsóknina. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og hefur notið aðstoðar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi auk embættis héraðssaksóknara og sérsveitar ríkislögreglustjóra,“ segir í tilkynningunni. 

Rannsókn málsins er á frumstigum og er málið rannsakað sem manndráp.

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert