Fyrirhugað er að fella 700 til 900 tré til viðbótar á skilgreindu svæði í Öskjuhlíð – hvar 730 tré hafa þegar verið felld í þágu flugöryggis, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Aðgerðaáætlun um trjáfellingar í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis var samþykkt af umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun og hefur málinu verið vísað til staðfestingar borgarráðs.
Aðgerðir eru í samræmi við tilmæli Samgöngustofu frá 17. janúar – þar sem óskað var eftir tímasettri aðgerðaáætlun vegna hæstu trjánna í Öskjuhlíð sem talið er að haft geti áhrif á flugöryggi við Reykjavíkurflugvöll.
Í fyrri áfanga verksins – sem lauk 22. febrúar – voru um 730 tré felld. Fyrirhugað er að fella 700 til 900 tré til viðbótar nú í öðrum áfanga.
Verkið verður unnið af verktakanum Tandrabretti – sem mun nota sérhæfðar vélar til að fella trén og flytja bolina út úr skóginum – undir stjórn Reykjavíkurborgar.
Þriðji áfangi hefst í mars en þá verða allar greinar hreinsaðar úr skóginum, kurlaðar og komið í farveg. Áætlað er að rúmmál þessa efnis verði um 6.000-7.000 rúmmetrar, eftir annan og þriðja áfanga.
Svæðið verður endurhannað – samhliða trjáfellingunum – með það að markmiði að tryggja að Öskjuhlíð haldist vinsælt útivistarsvæði. Svæðið mun þurfa tíma til að jafna sig og fylgjast verður með hvaða gróður kemur upp að sjálfu sér og ráðast í gróðursetningu eftir þörfum.
Skipulagt verður hvernig ný rjóður og útivistarsvæði verða mótuð með sérstakri áherslu á dvalarsvæði og fræðslu um náttúru- og menningarminjar á svæðinu. Landslagsarkitekt hefur þegar hafið vinnu við hönnun svæðisins og fyrstu tillögur verða kynntar á næstu mánuðum.
Trjáfellingarnar munu hafa áhrif á útlit Öskjuhlíðar. Í stað þéttra grenitrjáa munu opnast rjóður og svæðið mun fá nýtt útlit með lægri gróðri. Skógurinn mun endurnýja sig sjálfur að hluta til, en gróður verður einnig settur niður eftir þörfum.
Markmiðið er að tryggja að Öskjuhlíð haldi áfram að vera eitt vinsælasta útivistarsvæði borgarbúa, með aukinni áherslu á útivist, fræðslu og verndun minja.