Sigmundur Davíð fagnar hálfri öld

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins fagnar fimmtugsafmæli í dag. Í tilefni tímamótanna settist hann niður með Andreu Sigurðardóttur og leit yfir farinn veg í Dagmálum.

Honum var gerð fyrirsát í viðtalinu – og er það ekki í fyrsta skipti sem hann lendir í því – en inn í viðtalið ruddist Ásthildur Hannesdóttir með afmælisköku. Sigmundur blés á kertin venju samkvæmt en vildi ekki gefa upp hvers hann óskaði sér. Hann sagði þó svo mikið að hann sæi ekki þörf á að óska sér þess sérstaklega að ný ríkisstjórn félli, það sæi hún um sjálf.

Í viðtalinu gerir Sigmundur m.a. upp aðra fyrirsát, sem varð að Wintris-málinu svokallaða, aðdraganda hennar og áhrif, auk sigra og sorga á viðburðaríkum stjórnmálaferli.

Brot út viðtalinu þar sem Ásthildur gengur inn með afmælisköku má sjá í spilaranum hér efst en viðtalið í heild sinni geta áskrifendur Morgunblaðsins nálgast með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fimmtugur með veglega afmælisköku.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fimmtugur með veglega afmælisköku. mbl.is/Hallur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert