Utanríkis- og varnarmálaráðuneyti til skoðunar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eyþór Árnason

Ut­an­rík­is­ráðuneytið gæti brátt heitið ut­an­rík­is- og varn­ar­málaráðuneytið.

Þessi breyt­ing er nú til skoðunar inn­an stjórn­ar­ráðsins sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra sagði í sam­tali við mbl.is í gær að ekki væri í bíg­erð að setja á stofn sér­stakt ráðuneyti varn­ar­mála.

„Ekki á þessu stigi, en það sem við erum að gera er að við erum að taka þessi skref til að efla varn­ar­mála­skrif­stof­una og samþætta þess­ar stofn­an­ir sem koma að ein­um eða öðrum hætti að vörn­um lands­ins,“ sagði Þor­gerður.

Auk­inn þungi

„Það er að gef­ast vel og við sjá­um að það er mik­il sam­vinna og það eru ekki þessi síló á milli þess­ara sterku stofn­ana. Þannig við telj­um enn sem komið er ekki ástæðu til þess. En þung­inn í varn­ar­mála­hluta ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins er óneit­an­lega að aukast.“

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is er það þessi þungi sem ger­ir það að verk­um að til skoðunar er sam­hliða að breyta nafni ráðuneyt­is­ins, til að end­ur­spegla aukið vægi varn­ar­mála þar inn­an­dyra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert