Beint: Jóhann Páll boðar til kynningar

Jóhann Páll Jóhannsson.
Jóhann Páll Jóhannsson. mbl.is/Eyþór

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið boðar til kynningar á vinnu við stefnumótun um líffræðilega fjölbreytni. Kynningin fer fram í Norræna húsinu í dag kl. 9.30. 

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan. 

Á fundinum mun Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytja stutt erindi um mikilvægi stefnumótunarvinnunnar um líffræðilega fjölbreytni. Þá mun Snorri Sigurðsson formaður stýrihópsins, sem hefur það hlutverk að móta stefnuna, greina nánar frá yfirstandandi vinnu. Fjallað verður um skilgreiningar líffræðilegrar fjölbreytni og mikilvægi hennar sem grunnundirstaða lífsgæða á jörðinni, stöðu málaflokksins á Íslandi og hverjar eru helstu orsakir hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

„Sérstök áhersla er lögð á að kynna nýtt alþjóðlegt samkomulag Sameinuðu Þjóðanna um verndun líffræðilegrar fjölbreytni sem liggur til grundvallar þeirri stefnu sem nú er í vinnslu og mótar markmið og lykilviðfangsefni hennar. Þá verður greint frá skipulagi stefnumótunarvinnunnar og mikilvægum áhersluatriðum er varða innleiðingu og framkvæmd og einnig sagt frá næstu skrefum varðandi samráð.

Stýrihópinn skipa fulltrúar umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytis, innviðaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, matvælaráðuneytis, Háskóla Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga,“ segir enn fremur í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert